Umboðsmaður barna fer fram á að heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga kanni sérstaklega hvort öryggi barna sé fyllilega tryggt í líkamsræktarstöðvum. Tilefnið eru ábendingar um ófullnægjandi öryggi á slíkum stöðvum, meðal annars tilkynning um að ungbarn hafi verið flutt á sjúkrahús eftir að hafa fengið lóð í kviðinn.
„Við höfum heyrt af því að það hafi orðið slys. Til dæmis heyrðum við af því að ungabarn hefði fengið lóð í kviðinn og hefði þurft að fara með sjúkrabíl. Þannig að við þurfum auðvitað að fara að huga að þessu mjög vel,“ segir Salvör Nordal umboðsmaður barna.
„Við höfum áður fengið svona erindi þannig að okkur fannst ástæða til þess að beina því til heilbrigðiseftirlita að þetta yrði skoðað sérstaklega.“
Börn í líkamsræktarsal án eftirlits
Í erindi umboðsmanns barna er sérstaklega vísað til námskeiða sem eru ætluð nýbökuðum foreldrum, til að mynda svokallaðra mömmutíma, þar sem gert er ráð fyrir að barn fylgi foreldri í tímann.
Börn séu í sumum tilvikum látin liggja á svæðum sem séu ekki örugg, til að mynda í nálægð við þung tæki og lóð. Slíkar aðstæður geti skapað verulega slysahættu.
„Það er verið að vinna með mjög þung lóð á líkamsræktarstöðvum og það er mjög mikilvægt að ungbörn séu ekki þar nálægt,“ segir Salvör.
Þá hafi einnig verið bent á að starfsmaður sé ekki alltaf til staðar til að sinna barnagæslu. Börn hafi farið út af afmörkuðu svæði og gengið um líkamsræktarsalinn án eftirlits.
„Sjálfsagt er þetta mismunandi eftir líkamsræktarstöðvum hvernig öryggi barna er háttað. Það þarf að skoða þetta í hverju tilviki fyrir sig. Okkar markmið er að vekja athygli á öryggi barna og að það sé tryggt að börn séu örugg á líkamsræktarstöðvum ef þau eru þar á annað borð,“ segir Salvör.
„Það er full ástæða til að deila þessum tilmælum til heilbrigðisyfirvalda, að þau skoði þetta sérstaklega.“