Þolendurnir eru báðir fæddir árið 2013 en meintur gerandi árið 2014, að sögn Ásmundar Rúnars Gylfasonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Málið er á borði lögreglu. Þolendur hlutu ekki það alvarlega áverka að talið hafi verið þörf á að flytja þá á sjúkrahús.
„Aðilar máls eru ekki sakhæfir og málið í þeim farvegi. Það er unnið náið með foreldrum og barnavernd,“ segir hann.