Allt er að verða til reiðu fyrir UFC-bardaga sem verður í sérstökum bardagahring sem verið er að setja upp fyrir framan Hvíta húsið í Washington.
Bardaginn fer fram á laugardaginn og er hluti af hátíðahöldum í tilefni af 250 ára afmæli Bandaríkjanna 4. júlí og áttræðisafmæli Donalds Trump daginn sem bardaginn fer fram. Tólf íþróttamenn berjast í hringnum. Þetta er umdeilt, þykir breyta ásýnd Hvíta hússins um of og kosta of mikið. Fólk innan UFC hefur sagt að þar verði of heitt og of mikið af skordýrum.
Þá er verið að lita spegiltjörnina fyrir framan Lincoln-minnismerkið bláa. Staðurinn er einn sá sögufrægasti í borginni. Menningarsamtök í Washington krefjast þess að framkvæmdin verði stöðvuð.