„Þeir vilja komast yfir jarðirnar okkar en umfram allt vilja þeir þagga niður í okkur,“ segir Moira Millán, argentínsk baráttukona, um baráttu sína við argentínska ríkið um landsvæði í Patagoniu í suðurhluta Argentínu. Moira tilheyrir samfélagi frumbyggja í suðurhluta Argentínu og berst gegn landnámi argentínska ríkisins í þessum hluta landsins. Hún var stödd hér á Íslandi í síðustu viku sem gestur á ráðstefnu sem fram fór í Háskóla Íslands og ræddi meðal annars um þessa baráttu sína.
Moira segir í viðtali við fréttastofu að argentínska ríkið vilji losna við Mapuche-frumbyggjana af því að yfirvöld í landinu vilji hleypa fyrirtækjum í auknum mæli í náttúruauðlindirnar sem er að finna í Patagoniu. Meðal annars er þar að finna vatnsbirgðir, olíu og gas. Moira er sérstaklega gagnrýnin á núverandi forseta Argentínu, Javier Milei, sem hún segir að gangi harðar fram gegn hagsmunum frumbyggja en fyrri forsetar. „Þeir þurfa að losna við Mapuche-fólkið auk þess vilja þeir veita öðrum aðgang að þeim náttúruauðlindum sem eru þar. [...] Javier Milei hefur aukið kúgunina fyrir hönd ríkisins,“ segir Moira.
Moira hefur setið í fangelsi vegna baráttu sinnar, segist vera í lífshættu og hafa fengið líflátshótun.
Rætt er við Moiru og Hólmfríði Garðarsdóttur, prófessor í spænsku við Háskóla Íslands, í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þáttinn má hlusta á hér:
Segir Milei ganga lengra en fyrirrennarar hans
Hólmfríður Garðarsdóttir segir um stefnu Javier Mileis gagnvart frumbyggjum landsins. „Hann gengur svo langt. Það sem hún er að lýsa snýr sérstaklega að frumbyggjum af því hann hefur veitt gríðarlega mörg leyfi til námuvinnslu og til upptöku eða nýtingar á landi sem að hefur ríkt almennur skilningur um að eigi að vera látið í friði.“
Moira Millán segir að Milei hafi meðal annars lýst yfir vilja til að breyta svokölluðum jöklalögum í Argentínu sem voru sett árið 2010 til að vernda jökla og vatnsbirgðir landsins. Tæplega 17 þúsund jöklar eru í Argentínu, aðallega í Andes-fjöllunum. Milei vill minnka vernd þessara jökla í lögum og einnig auka möguleika á að hleypa einkafyrirtækjum í þessi landgæði. Talið er að verðmætar gas- og olíulundir kunni að leynast undir jöklunum.
Moira Millán segir að stjórnvöld í Argentínu hafi reynt að þagga niður í sér með ýmis konar hætti í gegnum tíðina. Eitt af því sé að reyna að halda því fram að hún sé hryðjuverkamaður. Hún segir hins vegar að hún hafi aldrei beitt ofbeldi á þeim 18 árum sem hún hafi barist gegn argentínska ríkinu. Moira segir að fyrir mörgum árum hafi hún setið í fangelsi í þrjá mánuði út af þessari baráttu sinni.
Moira hefur skrifað bók þar sem hún lýsir því að hún berjist fyrst og fremst gegn því sem hún kallar terricidio á spænsku sem útleggst sem jarðarmorð á íslensku. Með jarðarmorði á hún meðal annars við hvers konar eyðingu jarðarinnar undir framkvæmdir eins og námugröft og olíu- og gasvinnslu.