Stærsta bílasýning landsins var opnuð í Boganum á Akureyri í dag. Sýningin hefur verið haldin í rúmlega 50 ár og markar upphaf Bíladaga.
Jón Rúnar Rafnsson, formaður fornbíladeildar Bílaklúbbs Akureyrar, segir Bíladaga tækifæri fyrir samfélag bílaunnenda til þess að koma saman.
Rakel Ósk Einarsdóttir er ein þátttakenda sýningarinnar í ár. Í dag sýndi hún gestum fornbílinn sinn sem er í toppstandi þrátt fyrir að vera rúmlega þrjátíu ára gamall.
„Þetta er bara flottasti bíll á landinu, draumabíllinn minn. Hann er '83 Chevrolet C10 Short Bed. Og hann virkar, flottur bíll,“ segir Rakel.