Bandaríkjaher og her Sádi Arabíu gerðu árásir gegn vopnuðum fylkingum í Írak í nótt. Nokkrar þessara fylkinga styðja Írana og sumir þessara hópa hafa orð á sér fyrir að starfa út af fyrir sig.
Í færslu bandaríska hersins á X, segir að Íranski byltingarvörðurinn hafi fyrirskipað fylkingunum að ráðast á bandarískan her og orkuinnviði í Sádi Arabíu, en þessar árásir hafi mistekist.
Bandaríkjaher og her Sádi Arabíu svöruðu fyrir þessar árásir með árásum á hernaðarlega innviði fylkinganna í Írak og voru árásir gerðar á nokkra staði, meðal annars í Nineveh-héraði þar sem tíu menn féllu.
Bandaríkjaher segir að á tímabilinu febrúar til apríl á þessu ári hafi yfir 600 tilraunir til árása af hálfu vopnaðra fylkinga í Írak sem styðja Írana verið gerðar á bandaríska ríkisborgara og innviði.
Íröksku fylkingarnar neita því að bera ábyrgð á árásum á olíuinnviði Sáda og segja árásirnar á Írak vera stigmögnum á átökunum í Mið-Austurlöndum og ógn við fullveldi Írak.
Íranar hófu einnig árásir á ný í nótt eftir nokkurra daga hlé. Jórdanski herinn skaut niður fimm írönsk flugskeyti í nótt og Íranar stöðvuðu siglingu þriggja olíuflutningaskipa um Hormússund.