Bandaríkjaher hóf árásir á Íran að nýju í gærkvöld, sem svarað var með árásum á bandarískar herstöðvar í nágrannaríkjunum. Íranski byltingarvörðurinn kveðst hafa eyðilagt stjórnstöð Bandaríkjahers í Jórdaníu og grandað þar fjölda orrustuþotna.
Hann gerði einnig árásir á miðstöð fimmta flota Bandaríkjahers í Barein, sem gegnir lykilhlutverki í viðveru hans í Mið-Austurlöndum. Miðstjórn Bandaríkjahers, CENTCOM, segir hvorki hafa orðið tjón á mannvirkjum né mönnum þar.
Hún tilkynnti um miðja nótt að atlögum að Íran hefði linnt um sinn. Þeim hafi verið beint gegn eftirlits-, samskipta- og loftvarnarkerfum Íranshers.
Donald Trump forseti sagði skömmu áður en Bandaríkjaher lét til skarar skríða Írana hafa Bandaríkin að fíflum varðandi samningaviðræður um frið og því skyldu þeir fá að finna til tevatnsins. Því virðist sem endalok stríðsins séu enn utan seilingar.
Íranskir miðlar sögðu sprengjur hafa fallið nærri Hormússundi, í hafnarborginni Bandar Abbas, á tveimur eyjum í Persaflóa og víðar um landið.
Íranski sjóherinn segist hafa skotið að tveimur skipum á siglingu um Hormússund sem væri algerlega lokað og að árásir yrðu gerðar á hvert það fley sem reyndi þar för. Bandarísk hermálayfirvöld segja langt í frá að sundið sé lokað.