Ísraelskir og líbanskir herforingjar áttu „uppbyggilegar“ viðræður um frið milli ríkjanna í bandarísku höfuðborginni Washington í gær að sögn Elbridge Colby, aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna.
Hann sagði í færslu á X samtalið bæta miklu við þær formlegu, diplómatísku viðræður sem fram undan séu undir stjórn utanríkisráðuneytisins. Colby nefnir ekki vopnahlé milli Ísraels og Hezbollah sem átti að ganga í gildi 17. apríl en hefur ekki verið framfylgt.
Joseph Aoun Líbanonforseti hefur lagt mikla áherslu á allsherjar vopnahlé sem grundvöll friðar við utanríkisráðherrann Marco Rubio. Hann hrósaði Aoun fyrir vilja til viðræðna við Ísrael og kenndi jafnframt Hezbollah-hreyfingunni um yfirstandandi átök.
Þetta var fyrsti fundur herforingja Ísraels og Líbanons um áratugaskeið og Colby kvaðst vongóður um að þeir hittust aftur til að ræða öryggis- og varnarmál ríkjanna. Ísraelski forsætisráðherrann Benjamín Netanjahú sagði í gær að herinn hefði ruðst enn lengra inn í Líbanon og gert þungar loftárásir á suðurhluta landsins.
Heilbrigðisráðuneytið segir ellefu hafa verið drepna í árásum Ísraelshers á hafnarborgina Týros og minnst átta til viðbótar særst. Hezbollah sagðist á sama tíma hafa gert nokkrar árásir á hersveitir og bækistöðvar hersins í norðurhluta Ísraels.
Fundurinn í varnarmálaráðuneytinu bandaríska var haldinn jafnhliða vopnahlésviðræðum Bandaríkjastjórnar og Írana, sem krefjast þess að Líbanon verði hluti hvers þess samnings sem gerður verði svo ljúka megi stríðinu í Mið-Austurlöndum.