Bandaríkin og Íran skiptust á hörðum árásum í nótt, aðra nóttina í röð. Bandaríkin segjast hafa hæft tugi skotmarka í Íran í árásum sínum sem hófust í gærkvöld.
Stjórnstöð Bandaríkjahers sagði þær gerðar til þess að veikja getu Írana til að ráðast á herskip í Hormússundi. Árásirnar hafi beinst gegn loftvarnarkerfum, strandeftirlitsstöðvum, eldflauga- og drónabirgðum og smáum herskipum. Árásirnar voru gerðar að beiðni Donalds Trumps Bandaríkjaforseta.
Herinn segist hafa notað herþotur, herskip og dróna í árásunum. Auk flugdróna voru sjávardrónar notaðir í fyrsta sinn í árásum næturinnar.
Aukinn þungi í árásum Írana
Einn var drepinn og fjórir særðust í árás Bandaríkjahers á dælustöð í suðvesturhluta Írans í nótt. Frá þessu greina íranskir ríkismiðlar.
Íranski byltingarvörðurinn segir að her landsins hafi hæft bandarísk skotmörk, í Jórdaníu, Barein og Kúveit í nótt, þar á meðal herstöðvar.
Skömmu eftir að árásir Bandaríkjahers hófust í gærkvöld fordæmdu írönsk stjórnvöld árásir Bandaríkjanna á Íran síðustu daga. Þau segja árásirnar hafa gert að engu þann árangur sem náðst hafi í viðræðum síðustu mánaða.
„Þessar villimannslegu árásir eru ekkert annað en stórfellt brot á grundvallarreglum stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna og einnig alvarleg ógn við frið og öryggi á heimsvísu,“ segir í yfirlýsingu íranska utanríkisráðuneytisins.
Umferð um Hormússund ekki minni í fimm vikur
Íranar saka bandarísk stjórnvöld þar að auki um að bera ábyrgð á óöruggu ástandi á Hormússundi með því að skipta sér af „nauðsynlegum ráðstöfunum“ sem Íranar hafa gripið til í sundinu.
Ríkin hófu að skiptast á árásum á föstudagskvöld eftir árás Írana á flutningaskip sem stjórnvöld sökuðu um að sigla um Hormússund í leyfisleysi. Íranar tilkynntu að sundið yrði lokað þar til annað yrði ákveðið.
Bandaríkjaforseti sagði aftur á móti í gær að sundið væri opið.
Gögn um skipaumferð sýna að sex skip sigldu um Hormússund í gær. Þau hafa ekki verið færri í fimm vikur.