Leikstjórinn Baltasar Kormákur hefur óvænt blandað sér inn í umræðuna um mögulegar aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið en hann segir það sína einlægu trú að það væri gæfuskref fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið. Baltasar segir í viðtali í hlaðvarpinu Chess After Dark að hann hafi ekki ætlað að blanda sér í slaginn og á hann von á því að fá holskreflu yfir sig en hann sé knúinn til að tala frá hjartanu.
Baltasar Kormákur mætti óvænt í Evrópuslaginn: „Ég trúi því, einlæglega“