Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að samkomulag hafi náðst um að Breiðafjarðarferjan Baldur færi til Vestmannaeyja og myndi sigla milli lands og Eyja „meðan ástandið í Landeyjahöfn varir.“
Nokkuð hefur verið fjallað um ástand samgöngumála á svæðinu en ferjan Herjólfur hefur glímt við bilun og á sama tíma þurft að fara lengri leið til Þorlákshafnar vegna slæms ástands í Landeyjahöfn.
Vegagerðin segir að reiknað sé með að Baldur hefji siglingar á föstudaginn en nokkurn tíma taki fyrir skipið að sigla til Vestmannaeyja. Á meðan falli ferðir Baldurs yfir Breiðafjörð niður.
Baldur muni leggja af stað á fimmtudagsmorgun. Verið sé að setja saman siglingaáætlun fyrir viðbótarsiglingarnar en gert sé ráð fyrir að fyrsta ferð geti orðið á föstudagsmorgun.
Nánari upplýsingar um siglingaáætlun verða gefnar út af Herjólfi ohf. um leið og hún liggur fyrir, segir í tilkynningunni.
„Ekki er útlit fyrir vegna veðurs og sjólags að hægt verði að hefja dýpkun fyrr en á föstudag. Horfurnar til dýpkunar eru ágætar næstu daga á eftir.“
Herjólfur var sex klukkutíma að sigla frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja á dögunum vegna ólgusjós og vélarbilunar.
Ferjuleiðir ehf. hafa rekið ferjuna Baldur frá því í júní 2025.