Á­verkar geti sagt til um kraft sem er beitt í kyrkingu - Vísir

Á­verkar geti sagt til um kraft sem er beitt í kyrkingu - Vísir

Á­verkar geti sagt til um kraft sem er beitt í kyrkingu - Vísir

Pétur fjallaði um réttarlæknisfræðilega þætti kyrkingartaks, túlkun áverka og lífshættu á ráðstefnu í Háskólanum í Reykjavík í vikunni sem helguð var umfjöllun um kyrkingartak í ofbeldi frá ólíkum sjónarhornum. Pétur hefur rannsakað sérstaklega áverka á hálsi og aðstoðað lögreglu við fjölda rannsókna á ofbeldisverkum þar sem kyrkingartaki hefur verið beitt.

Pétur sagði áríðandi, og var það ákveðið stef í hans fyrirlestri, að þau sem hitti þolendur sem hafa orðið fyrir slíku ofbeldi viti hverju eigi að leita að og hver einkennin geti verið, hvenær þau koma fram og á hvaða tíma.

Sjá einnig: „Í einu til­viki var talað um nauðgunar­leik“

Hann ítrekaði að ofbeldi væri stór efnisflokkur og það væru þannig margar fræðigreinar sem ættu þátt í því. Réttarlæknar væru meðvitaðir um það en að þeir hefðu þröngt sjónarhorn. Þeirra vinna gangi út frá áverkafræði og hann myndi tala út frá því í sínu erindi. Um eðli fræðigreinarinnar og réttarfræðilegar áskoranir.

„Réttarlæknar eru læknar vissulega en eiginlega ekki alvöru læknar, við erum sérfræðingar sem notum þekkinguna okkar í allt aðra hluti en henni var ætlað fyrir,“ sagði Pétur og að þannig væru réttarlæknar ekki að lækna eða auka farsæld fólks eins og aðrir læknar reyna að gera. Þeir greini það sem þeir sjái og vinni með það hvernig eitthvað lítur út, formfræði hlutanna.

„Svo túlkum við það sem við sjáum. Spurningin sem við dílum við er atburður, þegar kyrking á sér stað, og ekkert af fagfólki sem kemur að málinu var á staðnum, en við erum samt að reyna að gera okkur grein fyrir atburðinum, sama hvort um andlát eða ofbeldisfullan atburð var að ræða,“ sagði Pétur og líkti vinnu réttarlækna við rannsóknir fornleifafræði- eða sagnfræðinga.

Áverkar ær og kýr réttarlækna

„Áverkar eru ær og kýr réttarlækna,“ sagði Pétur og að hugtök væru öllum réttarlæknum mjög hugleikin og að rétt hugtök væru notuð.

Hann sýndi máli sínu til stuðnings myndir af áverkum. Á fyrstu mynd mátti sjá hendur sem höfðu verið skornar með beittu áhaldi. 

„Áverkar eru alls lags,“ sagði Pétur og að þegar áverkar eru skoðaðir skipti krafturinn máli sem veldur áverkanum. Þegar réttarlæknar skoði áverka hugsi þeir þannig um það hvers konar kraftur geti valdið slíkum áverka.

„Ef við skiljum kraftinn skiljum við eitthvað um atburðinn,“ sagði Pétur og að því meiri sem krafturinn sé, því alvarlegri sé áverkinn.

Punktblæðingar á augnloki. Aðsend

Minna flatarmál meiri áverkar

Þá þurfi einnig að horfa til flatarmáls áverkans og því minna sem það sé því líklegra sé að áverkinn sé meiri og alvarlegri. Hann sagði suma áverka lífshættulega og geta þannig greiðlega leitt til dauða eða valdið augljósri lífshættu, til dæmis þegar slagæð fer í sundur. Réttarlæknar horfi þannig á áverka fólks og meti hversu líklegir þeir séu til að leiða til andláts.

Pétur sagði einnig mikilvægt að skoða ástand í kjölfar ofbeldis og hvaða afleiðingar það hefur. Þannig skoði réttarlæknar áverka, ástand og svo gjörninginn sjálfan. Í þessu mati skipti hvert hugtak miklu máli og hvernig það er skilgreint.

Hann sagði réttarlækna einnig horfa til þess hvernig eitthvað sé almennt og svo til stakra tilfella. Þannig sé, til dæmis, spark í hausinn almennt lífshættulegt og að stinga einhvern í brjóstið en stök tilfelli geti endað með áverka sem ekki sé lífshættulegur.

Áverkar konu sem varðist árás með hamri. Vísir/Lovísa

Eftir það fjallaði Pétur sérstaklega um hálsinn. Það sé í raun lítið svæði og aðeins um eitt prósent af líkamsyfirborðinu. En tók þó fram að þó að svæðið sé lítið sé það afar merkilegt.

„Þetta er sá partur sem er með hæsta þéttni af lífsmikilvægum líffærum,“ sagði Pétur en þar er að finna mænuna, hálshrygg, taugar, æðar, loftveginn og vélindað. Hálsinn væri auk þess mjög hreyfanlegur og höfuðið geti snúist til hliðar.

„Hann er afskaplega viðkvæmur,” sagði Pétur og að hálsinn væri auk þess staður á líkamanum sem væri tengdur við nánd og að fólk væri sjaldan með áverka þar. 

„Það eru kannski einhverjir unglingar með sogbletti, karlar með meiðsli eftir rakvél en það er eiginlega alltaf athugavert að vera með áverka á hálsi. Hálsinn er það svæði sem er léttast að valda skaða með litlu handtaki... Það er auðvelt að beita hálstaki,“ sagði Pétur og að það væri afar algengt að hálstakið væri hráefni í árás í heimilisofbeldi.

Fjöldi lögreglumanna sat ráðstefnuna en þau eru oft fyrst á vettvang. Á myndinni má sjá fyrir miðju Agnesi Eide Kristínardóttur, yfirmann miðlægrar deildar lögreglu, og svo til vinstri Ásmund Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn og stöðvarstjóri Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á Stöð 1. Vísir/Vilhelm

Í hálstaki sé oft talað um köfnun, þegar heilinn fari að líða fyrir það að njóta ekki súrefnis. Skilgreiningin sé samt sem áður of víð því það séu til ólíkar tegundir köfnunar, til dæmis þegar stendur í fólki eða þegar það er kæft.

„Heilinn er fórnarlambið í köfnun og er viðkvæmt líffæri og frekt á súrefni og hefur ekki þol fyrir því að það sé skrúfað fyrir súrefni. Það er ástæðan fyrir því að þetta er líkamlega alvarlegt,“ sagði Pétur og útskýrði svo líffræði heilans og öndunar. 

Hann sagði að honum þætti oft of lítið gert úr hluti æða þegar tekið er um hálsinn. Í hálsinum séu bæði bláæðar og slagæðar og þegar tekið sé um hálsinn séu fingur settir á þessa staði og þrýstingi sem sé beitt fari í að loka þessum æðum. Til að loka bláæðum þurfi aðeins um tveggja kílóa tak, eins og venjulegt handtak, en til að loka slagæðum þurfi meiri kraft. Þannig loki léttara tak bláæðunum en þrengra tak slagæð. Með því sé lokað fyrir blóðflæði til heila og aðeins þurfi að taka um hálsinn í um sex til tíu sekúndur svo að fólk missi meðvitund. Aðrir áverkar geti verið brotið tungubein eða skjaldbrjósk en réttarlæknar geti sjaldnast greint slík brot nema í þeim sem látin eru.

Hálsinn sé nándarsvæði

„Við viljum verja hálsinn, hann er okkar nándarsvæði,“ sagði Pétur og að hægt væri að líkja beinum í hálsinum við eldspýtur eða tannstöngla, það væri svo auðvelt að brjóta þau. Það væri samt sem áður heilmikið af vefjum og vöðvum til að verja þau.

Pétur fór svo yfir það í sinni umfjöllun hvað nákvæmlega kyrking væri og einbeitti sér að handleggskyrkingu, eða árásarkyrkingu.

„Hana er hægt að framkvæma með annarri hendi eða báðum, það er vanalegt í heimilisofbeldi,“ sagði hann og að gerandi notaði ekki alltaf báðar hendur. Stundum notaði hann snæri eða snöru eða þrýsti þolanda upp að vegg eða að jafnvel væri sest á þolendur til að auðvelda framkvæmdina.

„Það sem gerist er að æðar lokast, fyrst bláæðar lokast og svo slagæðar með auknum krafti, loftvegurinn lokast en fellur ekki saman, við lokum honum ekki með takinu,“ sagði Pétur en að loftvegurinn verði fyrir takmörkunum þegar ýtt er á hálslíffærin og þau færð upp. Þannig lokist hann og það geti orðið algjör lokun. Hann sagði samt sem áður þennan „loftvegaþátt“ minni samkvæmt réttarlækningum, það sem réttarlæknar horfi meira á sé „æðarþátturinn“.

Þarf að glápa í góðu ljósi

Pétur fór að því loknu yfir mögulega áverka sem þolendur geta fengið og nefndi sem dæmi punktblæðingar og leðurhúðarblæðingar og sagði áríðandi að gera greinarmun þar á. Hann sagði stundum erfitt að sjá punktblæðingar og stundum þyrfti hann hreinlega að glápa á fólk í nokkra stund í góðu ljósi til að sjá þær. Þær séu fíngerðari og dulari en gangi út á ákveðnum stöðum, augnloki til dæmis og augntóftasvæðinu.

„Og alls staðar fyrir ofan kyrkinguna sjálfa. Forsendan fyrir því að punktblæðingar myndist er háþrýstingur í bláæðunum.“

Leðurhúðablæðing sagði hann fíngerðar húðblæðingar sem geti litið út eins og skrámur. Þær séu það þó ekki og eigi heldur ekkert skylt með punktblæðingum. Slíkar blæðingar komi við handtak og séu gagnlegir áverkar við að meta kraft sem var beitt. Pétur sagði mikilvægt að gera greinarmun á til dæmis rispu og húðblæðingum. Þrýstingur væri undanfari húðblæðinga en skrap valdi rispu.

Pétur sagði mikilvægt að fólk væri spurt um ákveðin atriði eftir kyrkingu eins og meðvitundarmissi, sjóntruflun, þvag- eða hægðarmissi, andnauð, verki, hæsi, öndunarerfiðleika og minnistruflanir.

Sjá einnig: Hafi tekið barns­móður sína háls­taki

Hann tók dæmi um konu sem kyrkt var um nótt og var svo á bráðamóttöku fjórum klukkutímum síðar og þar hafi hún hitt lækna sem síðar gáfu út áverkavottorð. Þar hafi hins vegar ekkert verið minnst á punktblæðingar en hún hafi verið með óteljandi þannig. Það sé því afar mikilvægt að þau sem skoði og hitti þolendur viti hverju eigi að leita að og hvað eigi að skoða.

„Það er mjög mikilvægt að þau sem skoða geri sér grein fyrir tegundum húðblæðinga þegar hálsinn er skoðaður,“ sagði Pétur og að fagfólk verði að kunna að skoða þolendur heimilisofbeldis. Það verði að skoða hálsinn og taka myndir.

„Áverkar eru áverkafræðileg sönnun um að áverkinn hafi verið á þessum stað,“ sagði Pétur og að marblettir séu ekki eins góð gögn því þeir geti komið fram á öðrum stað en áverkinn var, það gildi ekki það sama um  leðurhúðablæðingar. Þær færist ekki til eins og marblettir.

Á myndinni má sjá Gerard Baden Clay 2012 Ástralía. Morð eiginkonu hans vakti miklar athygli en hann var með týpísk klórför eftir fórnarlambið. Aðsend

Pétur sagði að sama skapi nauðsynlegt í þessum tilfellum að skoða áverka á gerendum og þeir geti oft sagt mikið til um áverka og kraft sem var beitt á þolanda. Hann tók dæmi um Gerard Baden Clay sem myrti eiginkonu sína, Allison, árið 2012. Á andliti hans var að finna skrámu sem hann sagði eftir rakvélablað. Fyrir dómi sagði réttarlæknir að áverkarnir væru líklega eftir fingurnögl, frekar en rakvélablað.

„Það er mikilvægt að skoða gerendur í „hands on“-ofbeldi,“ sagði Pétur og að það væru annars konar áverkar en eftir hnífsstungur eða þegar byssum er beitt því þolendur séu nógu nálægt geranda til að geta veitt þeim áverka. Klórför séu þannig kannski ekki merkilegur áverki en geti verið áhugaverður áverki í slíkum málum. Það sé ekki algengt að vera með slíkan áverka á hendi eða andliti og því ætti að taka mið af því við rannsókn.

Sjá einnig: Tvö­falt lík­­legri til að vera tekin kyrkingar­taki af maka en í slag niðri í bæ

Pétur fór að því loknu yfir áverka sem koma fram í manndrápsmálum þar sem kyrkingu var beitt. Hann sagði flesta áverka innri áverka sem sjáist í krufningu. Yfirleitt séu myndarlegar punktblæðingar en stundum séu engar slíkar blæðingar. Hann sagði að í kyrkingum sem leiði til dauða sé hægt að skoða líkamann betur en ella.

Kyrking dulið fyrirbæri

„Við erum alltaf að hugsa um kyrkingu því við vitum að það er dulið fyrirbæri. Það eru oft engir ytri áverkar hjá fólki sem lifir af kyrkingu,“ sagði hann og þess vegna leggi þeir sérstaka natni í að skoða heimilisofbeldismál og áverka á þolendum.

Myndin sýnir leðurhúðarblæðingar en einhverjar skrámur til hliðar. Aðsend

„Það er einstaklingsmunur en viðmið að kyrking er óafturkræf eftir þrjár mínútur. Gerandi sleppir takinu og manneskjan mun ekki vakna. Ef hann nær ekki þessum punkti mun manneskjan vakna,“ sagði hann en tók þó fram að mun styttri tíma þurfi til að skerða meðvitund, aðeins um sex til tíu sekúndur.

Hann sagði punktblæðingar koma fram eftir um 15, 20 til 30 sekúndur.

„Það þarf tíma. Þess vegna eru þær mikilvægar, gefa tímafactor,“ sagði hann og þess vegna væri áríðandi fyrir lögreglu og heilbrigðisstarfsfólk að meta slíka áverka vel. Það geti gefið vísbendingar um eðli og tímalengd árásar.

#geti #kraft #sagt #til #áverkar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262889901d/averkar-geti-sagt-til-um-kraft-sem-er-beitt-i-kyrkingu

📰 Aðrar fréttir

Hundreds of IDF investigations into killings without public outcome, BBC Verify finds
📅 15.10.2026 👁️ 1
Hundreds of IDF investigations into killings without public outcome, BBC Verify finds
BBC Verify has identified 254 incidents from the past three years the Israeli military said it is reviewing after being accused of harm.
Falin myndavél fannst í sturtum kvenkyns hermanna
📅 15.10.2026 👁️ 2
Falin myndavél fannst í sturtum kvenkyns hermanna
Varnarmálaráðuneyti Ástralíu hefur hafið rannsókn á því hvernig falin myndavél rataði í klefa um borð í einu skipa sjóhersins.Ábending um að myndavéli...
Bækur Sally Rooney teknar úr sölu vegna stuðnings við Palestine Action
📅 15.10.2026 👁️ 2
Bækur Sally Rooney teknar úr sölu vegna stuðnings við Palestine Action
Írski rithöfundurinn Sally Rooney segist vera tilneydd til að taka bækur sínar úr sölu í Bretlandi vegna stuðnings hennar við samtökin Palestine Actio...
White House defends new press secretary Katie Zacharia amid questions about her legal credentials
📅 15.10.2026 👁️ 2
White House defends new press secretary Katie Zacharia amid questions about her legal credentials
Katie Zacharia does not appear to be registered to the legal bar in any state where she has lived.
North Korea and China open new bridge after 12-year delay
📅 15.10.2026 👁️ 1
North Korea and China open new bridge after 12-year delay
China is the North's largest trading partner and a lifeline against the sanctions Pyongyang faces.
Viðvaranir gular en áfram hríð og óvissustig vegna snjóflóðahættu
📅 15.10.2026 👁️ 3
Viðvaranir gular en áfram hríð og óvissustig vegna snjóflóðahættu
Veðurviðvaranir eru nú allar gular en enn þá er norðan- eða norðvestanhríð í þeim landshlutum þar sem viðvaranir gilda.Á Vestfjörðum er slæmt skyggni ...
Retired US generals call on Pentagon to cancel livestream execution
📅 15.10.2026 👁️ 2
Retired US generals call on Pentagon to cancel livestream execution
Livestreaming the execution of Nidal Hasan "will taint the honor of the military that employs it, and a nation that allows it," 72 former officers sai...
Nýtt háskólanám í vímuefnaráðgjöf hefst næsta haust
📅 15.10.2026 👁️ 3
Nýtt háskólanám í vímuefnaráðgjöf hefst næsta haust
Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti nýverið að bjóða upp á tvær nýjar námsleiðir við skólann. Það verður boðið upp á diplómu- eða meistaranám í ...
„Þessi á­kvörðun mun kosta mörg manns­líf“ - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
„Þessi á­kvörðun mun kosta mörg manns­líf“ - Vísir
Selenskí er í opinberri heimsókn í Bretlandi og gaf sér tíma til að mæta í viðtal hjá Piers Morgan. Þar var fjallað um takmarkanirnar á Starlight-tækn...
Dog that hunts invasive sea creature named animal of the year
📅 14.10.2026 👁️ 5
Dog that hunts invasive sea creature named animal of the year
A working is named animal of the year for hunting out an invasive marine creature, the carpet sea squirt.
Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð - Vísir
Vegagerðin setur á óvissustig og tók hún gildi klukkan tíu í kvöld. Óvissustig þýðir að veginum gæti verið lokað með skömmum fyrirvara. Einnig eru Þrö...
SOS Children's Villages International withholds report into its role in 'disappeared' Syrian children
📅 14.10.2026 👁️ 1
SOS Children's Villages International withholds report into its role in 'disappeared' Syrian children
SOS Children's Villages International has acknowledged that more than 140 children were taken to its facilities by Syrian security services.
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð
📅 14.10.2026 👁️ 5
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð
Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð á Vestfjörðum. Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi á Vestfjörðum, Strönd...
Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá - Vísir
Lyfjafyrirtæki þurfa að sækja um markaðsleyfi í öllum ríkjum þar sem til stendur að setja lyf á markað. Mikill fjöldi nýrra sérhæfðra lyfja hefur komi...
Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“
📅 14.10.2026 👁️ 5
Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“
Breskur maður á fertugsaldri hefur verið handtekinn eftir að hafa fróað sér í lest, meðal annars fyrir framan konur, í samanlagt 13 klukkutíma. Maðuri...
Reform faces criticism after councillors filmed making racist comments
📅 14.10.2026 👁️ 5
Reform faces criticism after councillors filmed making racist comments
Reform says all of those people filmed by ITV are under investigation having resigned or been suspended.
Cappuccino fyrir eigendur og puppoccino fyrir hundana
📅 14.10.2026 👁️ 5
Cappuccino fyrir eigendur og puppoccino fyrir hundana
Gestir á kaffihúsi einu í Kópavogi eru misvel upp aldir en allir jafn velkomnir, hvort sem þeir ganga á tveimur jafnfljótum eða fjórum fótum. Á kaffih...
Brooklyn novelty shop reeling from 'surreal' row with Kelly Clarkson over mechanical bird
📅 14.10.2026 👁️ 5
Brooklyn novelty shop reeling from 'surreal' row with Kelly Clarkson over mechanical bird
Art of Play says its staff have been threatened after the singer complained online about how she was treated.
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum
📅 14.10.2026 👁️ 4
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum
Saurora Grace er 32 ára kona frá Manchester í Englandi. Hún starfar sem svokallaður kynlífsstaðgengill eða sex surrogate, einstaklingur sem aðstoðar f...
Val­höll skrefi nær því að verða níu­tíu her­bergja hótel - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Val­höll skrefi nær því að verða níu­tíu her­bergja hótel - Vísir
Valhöll hefur um áratugaskeið verið þekkt sem höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins. Alva capital og flokkurinn undirrituðu kaupsamning um húsið í febrúar...
Sigríður og eiginmaður hennar eru 1 af 6: „Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Sigríður og eiginmaður hennar eru 1 af 6: „Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða“
„Ég og maðurinn minn erum 1 af 6. Við erum eitt af þeim pörum sem vita manna best að barneignir eru ekki sjálfgefnir lífsviðburðir heldur ferli sem in...
Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi - Vísir
Faber, útgefandi Rooney, sagði í yfirlýsingu í dag að vegna lagasetningar í Bretlandi geti Faber ekki greitt Rooney tekjur sem aflað er í Bretlandi fy...
Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða - Vísir
Prince, sem hefur verið dyggur stuðningsmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta, rekur nú málaliðafyrirtækið Vectus Global, sem starfar meðal annars á H...
UK threatens visa bans for Eritrea over migrant return policy
📅 14.10.2026 👁️ 4
UK threatens visa bans for Eritrea over migrant return policy
The home secretary said she would not hesitate to impose measures on other countries "refusing to co-operate".
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum
📅 14.10.2026 👁️ 4
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum
Nokkuð kólnar í veðri á höfuðborgarsvæðinu með kvöldinu og í fyrramálið og viðbúið að hitinn verði nálægt frostmarki í efri byggðum. Lögreglan hvetur ...
Ugla yfir­gefur borgina - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ugla yfir­gefur borgina - Vísir
„Jæja, litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ skrifar hann í færs...
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps
📅 14.10.2026 👁️ 4
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps Fréttin14. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Commen...
Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig
📅 14.10.2026 👁️ 4
Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig
Leikstjórinn Penelope Spheeris gagnrýndi leikkonuna Jennifer Aniston fyrir að hafa, eftir því sem Spheeris heldur fram, gefið henni kynlífstæki í þeim...
Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set
📅 14.10.2026 👁️ 4
Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set
„Jæja litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ segir Árni Árnason, ...
Mynd af hinstu stundinni í rússíbananum í dreifingu – Fjölskyldan biðlar til almennings að hætta að dreifa
📅 14.10.2026 👁️ 4
Mynd af hinstu stundinni í rússíbananum í dreifingu – Fjölskyldan biðlar til almennings að hætta að dreifa
Maðurinn sem lést í rússíbanaslysinu í Georgíufylki í fyrradag var nýgenginn í samtök rússíbanaáhugafólks. Samfélagið er í molum og krefst aðgerða til...
„Ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi“
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi“
Andri Þór Guðmundsson, stjórnarformaður Beru móðurfélags Ölgerðarinnar, og fyrrum forstjóri Ölgerðarinnar til tveggja áratuga segir fyrirtækið alltaf ...
Why Zelensky's meeting with Burnham matters
📅 14.10.2026 👁️ 3
Why Zelensky's meeting with Burnham matters
Prime Minister Andy Burnham welcomed President Zelensky to Downing Street on Wednesday, as Ukraine's leader looks to shore up his European allies five...
Tekið að flæða að húsum í Vík
📅 14.10.2026 👁️ 4
Tekið að flæða að húsum í Vík
Nokkrar líkur eru á að sjór geti flætt yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal á háflóði í kvöld og því gæti þurft að loka honum. G. Pétur Matthíass...
Ólíklegt að flæði yfir þjóðveginn við Vík
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ólíklegt að flæði yfir þjóðveginn við Vík
Ólíklegt þykir að sjór flæði yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal. Vegagerðin og björgunarsveitir voru viðbúnar því að veginum yrði lokað því öld...
Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru - Vísir
Heiðrún Hauksdóttir, einnig þekkt sem Heidrunguide, var stödd í Reynisfjöru fyrr í dag þar sem töluverður öldugangur var. Hún náði þessu myndskeiði þa...
Starlink: Musk says US government may be behind slowdown of Ukraine drone speeds
📅 14.10.2026 👁️ 4
Starlink: Musk says US government may be behind slowdown of Ukraine drone speeds
Ukraine says Starlink access has improved but it is still facing speed limits which are disrupting its battlefield "missions".
Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart
📅 14.10.2026 👁️ 4
Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir gríðarlega mikilvægt að markaðir séu opnir og að það sé ekki komið í veg fyrir að ný fyri...
Ozempic gerir óskunda í samskiptum mæðra og dætra
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ozempic gerir óskunda í samskiptum mæðra og dætra
Þið hafið kannski heyrt um Ozempic-hár, -píku, -typpi, -andlit og fleira sem rekja má til aukaverkana eða óvæntra afleiðinga þessu vinsæla þyngdarstjó...
Gefur í skyn að banda­rísk stjórn­völd hafi sett tak­markanir á Úkraínu­menn - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Gefur í skyn að banda­rísk stjórn­völd hafi sett tak­markanir á Úkraínu­menn - Vísir
Fjallað var um það á Vísi í dag að úkraínskir hermenn hafi fundið fyrir takmörkunum sem felast í því að þegar móttökustöðvarnar nái tilteknum hraða sl...
Stigu trylltan dans á Saint Pete - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Stigu trylltan dans á Saint Pete - Vísir
Meðal annarra tónlistaratriða voru Herra hnetusmjör, Úlfur Úlfur, Elvar Orri og Steindi og Auddi en þeir síðastnefndu fengu Pétur til liðs við sig í s...
Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“
„Ekki skiptir maður við bófa! Hvað verður um hátíðarblandið? Hvar er núna gamla (en alls ekki bragðgóða) Sanitas maltið, Thule appelsínið og Vallasdry...
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu
📅 14.10.2026 👁️ 4
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu
Búast má við talsverðri ofankomu sem hefur áhrif á færð og samgöngur á norðanverðu landinu fram á kvöld og inn í nóttina, segir Hera Guðlaugsdóttir ve...
Verkalýðsbaráttan er eilífðarverkefni segir fráfarandi forseti
📅 14.10.2026 👁️ 4
Verkalýðsbaráttan er eilífðarverkefni segir fráfarandi forseti
Forseti ASÍ og forsætisráðherra ræddu lærdóminn af kjarasamningunum í ávörpum við setningu þriggja daga þings Alþýðusambandsins í morgun. Báðir frambj...
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“
Eigendur gleraugnaverslunar sem barst krafa um bótagreiðslu, vegna notkunar á tónlist í myndbandi á samfélagsmiðli, leggja til að höfundalögum verði b...
„Ég sá bara upp í himininn upp um þaklúguna“
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Ég sá bara upp í himininn upp um þaklúguna“
Þrjú þök fuku af húsum á Siglufirði í veðurofsanum sem gengur nú yfir mestallt landið. Þakið á heimili Karenar Birgisdóttur, er eitt þeirra sem fauk.H...
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru
📅 14.10.2026 👁️ 4
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru
Nokkuð hættulegar aðstæður mynduðust við Reynisfjöru í dag vegna veðurs og mikillar ölduhæðar, fyrr en spár gerðu ráð fyrir. Landeigendur höfðu virkja...
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana
📅 14.10.2026 👁️ 5
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana
Bítillinn Paul McCartney er ekki ánægður með hvernig hæð hans er framsett í væntanlegri fjögurra þátta kvikmynd Sam Mendes um Bítlana.„Við vorum allir...
What if you could turn off your algorithm? Australia is about to try
📅 14.10.2026 👁️ 1
What if you could turn off your algorithm? Australia is about to try
New legislation is being tabled in Australia's parliament on Thursday to force big tech to allow users to switch off algorithms which send them recomm...
Gekk berserksgang á heilsugæslustöð og hótaði læknum lífláti
📅 14.10.2026 👁️ 5
Gekk berserksgang á heilsugæslustöð og hótaði læknum lífláti
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir síbrotamanni til 3. nóvember næstkomandi.
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“
📅 14.10.2026 👁️ 5
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“
Sjúkratryggingar Íslands hafa ekki afhent Rótinni aðgang að samningi sínum við SÁÁ líkt og stofnunin átti að gera samkvæmt úrskurði úrskurðarnefndar u...