Áhugaverðar einkamálaauglýsingar í Bændablaðinu hafa vakið kátínu undanfarin misseri en í blaðinu í gær var auglýst eftir einhleypum iðnaðarmanni sem tekur sjálfum sér ekki of alvarlega, en auglýsandinn gerði þó einn fyrirvara. Enga Miðflokksmenn.
„Einhleypur iðnaðarmaður óskast. Ert þú á aldrinum 45-50 ára, starfar sem iðnaðarmaður og tekur sjálfan þig ekki of alvarlega? Þá gæti ég verið með verkefni fyrir þig. Hún er lágvaxin, ljóshærð íþróttakona. Hún elskar að vera úti í náttúrunni og gera spontant hluti. Verkefnalýsing: Samvera í hinum ýmsu aðstæðum, kossar, knús og annað sem til fellur. Verkefnið er hugsað til lengri tíma, ekki skemmri. Ef þú sérð fyrir þér að ráða við verkefnið, endilega sendu póst á mennt3@gmail.com. Ef þú ert Miðflokksmaður er fallegt hugskeyti alveg nóg.“
Uppáhaldsfréttamaður Íslendinga, Magnús Hlynur Hreiðarsson, vakti athygli á auglýsingunni á Facebook. En auglýsinguna má líka finna í einkamáladálki Bændablaðsins á blaðsíðu 62.