Lögregla á vettvangi rannsakar nú alvarleg atvik sem átti sér stað í fjölbýlishúsi við Hafnarbraut á Kársnesi, Kópavogi, í hádeginu í dag. Viðbúnaður hefur minnkað á vettvangi frá því sem áður var en tæknideild er enn að störfum.
„Ég varð í raun bara vör við þetta í kjölfarið, ég var ekki heima þegar þetta var í gangi,“ segir kona sem býr í sama stigagangi og hið óþekkta, alvarlega atvik átti sér stað.
„En þegar ég kom heim var lögreglulokun í gangi og lögreglan er ennþá hér,“ sagði konan í viðtali við DV, laust eftir kl. 15:30 í dag.
Sjá einnig: Alvarlegt atvik í Kópavogi
Hún segist hafa komist inn í húsið í gegnum bílakjallara því hann var ekki lokaður. „Ég ræddi síðan við nágrannakonu mína og þá kom lögreglumaður að og sagði okkur að við séum á lokuðu lögreglusvæði og biður okkur um að fara inn til okkar. Hann segir bara að það sé lögregluaðgerð í gangi en við fáum engar upplýsingar. Mér skilst að íbúar viti bara mjög takmarkað um hvað gerðist.“
Konan segir að maður hafi verið leiddur í járnum burtu frá húsinu. Hún segir ennfremur að blóð sé utan á húsinu.
„Það er blóð á húsinu, það er það eina sem ég veit,“ sagði konan við spurningu DV um hvort hún viti eitthvað um hvað hafi gerst. „Þetta er mjög óþægilegt,“ bætti við hún.
Kona segir að atvik sem kalli á stóra lögregluaðgerð sé ekki eitthvað sem hún hefði getað átt von á, þetta sé rólegt hús.
„Þetta kemur mér á óvart, ég hef ekki heyrt nein læti eða partýstand eða nokkuð annað sem hefði verið hægt að draga þessa ályktun af. En ég bara veit ekki neitt, sko.“
Uppfært kl. 16:10 – Blóðugur maður í bakaríi
Vísir greinir frá því að maður hafi gengið blóðugur inn í barkaíið Brikk við Hafnarbraut á Kársnesi, Kópavogi, upp úr hádegi í dag, með handklæði vafið um særða hönd. Sagðist hann hafa verið skotinn í höndina. Á kaffihúsinu var hringt á sjúkrabíl fyrir manninn. Skömmu síðar kom lögregla á staðinn en hlúð var að manninum í sjúkrabíl fyrir utan.
Á sama tíma og þessu fór fram stóð yfir umfangsmikil aðgerð lögreglu og sérsveitar í fjölbýlishúsi í götunni.