Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er að flytja heim frá New York þar sem hún hefur verið búsett í tæplega ár. Áslaug Arna flutti til New York til að stunda nám í Columbia-háskólanum en þaðan útskrifaðist hún á dögunum.
„Mér tókst það. Þegar ég var að alast upp heyrði ég mömmu gjarnan tala um hversu umbreytandi það ár hefði verið þegar hún var í meistaranámi í Bandaríkjunum. Eftir að hún lést bar ég þessa hugmynd alltaf með mér. Mig langaði að feta í fótspor hennar einn daginn og læra erlendis. En þar sem stjórnmálaferill minn þróaðist hratt virtist rétti tíminn aldrei koma, fyrr en á síðasta ári.“
Vegna flutninga til Íslands á ný er Áslaug Arna með nokkra hluti til sölu sem hún þarf að losna við. Þar á meðal eru nokkrir hlutir úr Stockholm-línu Ikea sem kom á markað í fyrra eins og borðstofuborð og hliðarborð á hjólum. Íslendingar í New York ættu því að geta gert góð kaup.
Stockholm-lína Ikea vakti mikla athygli í fyrra þegar hún kom á markað. Árið 1985, eða fyrir 40 árum, frumsýndi Ikea sína fyrstu Stockholm-línu. Síðan þá hefur ný lína litið dagsins ljós nokkrum sinnum og hafa vörurnar þótt eftirsóttar. Biðin eftir nýrri Stocholm-línu hefur tekið á en sjö ár eru síðan síðasta lína kom á markað. Hún innihélt hluti sem þykja móðins á Íslandi og líka víða um heim.


