Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri birtist langri auglýsingu nýs smákökufyrirtækis. Áttundi maður á lista Framsóknarflokksins í Kópavogi er skráður forsvarsmaður fyrirtækisins á samfélagsmiðlum.
„Gott að hafa svona í Kópavogi“
Í myndbandi sem birtist á samfélagsmiðlinum TikTok frá smákökufyrirtækinu Girnó Cookies má sjá Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs, gæða sér á kökunum.
„Geggjað, var að fá gjöf,“ segir Ásdísi í myndbandinu sem er um einnar mínútu langt. „Kæra Ásdís bæjó, verði þér að góðu, kveðja Girnó.“
Má svo sjá bæjarstjórann bragða á nokkrum kökum og lýsa velþóknun sinni á þeim. „Þetta er geggjað. Það er gott að hafa svona í Kópavogi,“ segir hún svo að lokum áður en lógó fyrirtækisins birtist.
Mjög óvanalegt er að íslenskir embættismenn birtist í auglýsingum fyrir einkafyrirtæki. Enda má velta því fyrir sér hvort það teljist ekki sem óheilbrigð markaðsafskipti.
Stóra kjólamálið
Eitt nærtækasta dæmið sem hægt er að nefna er „Stóra kjólamálið“ svokallaða frá árinu 2017. Það er þegar Björt Ólafsdóttir, þáverandi umhverfis- og auðlindaráðherra, lét mynda sig í kjól frá breska fyrirtækinu Galvan í sal Alþingis. En vinkona hennar, Sólveig Káradóttir, starfaði þar sem listrænn stjórnandi.
@girno.cookies Ásdís bæjarstjóri Kópavogs smakkar Girnó✨🍪🩷 #girnó #cookies #fyrirþig ♬ SMS – Alaska1867 & Young Nazareth
Til að byrja með svaraði Björt ekki blaðamönnum, þá reyndi hún að slá málinu upp í hálfkæring en að lokum baðst hún afsökunar og viðurkenndi að hafa sýnt af sér dómgreindarleysi.
Sjá einnig:
Björt biðst afsökunar á stóra kjólamálinu:„Ég sýndi dómgreindarleysi“
„Ég sýndi dómgreinarleysi með því að flögra um þingsalinn stolt af þeirri hönnun sem ég stóð í og stolt yfir að vera kona í því hlutverki sem ég er og að leyfa mér að upphefja kvenleikann inni í þingsal sem svo ljósmyndari festi á filmu. Þau skilaboð eru fólki ekki greinilega ekki efst í huga, og þessi uppsetning því vanhugsuð því hún tengir við einkafyrirtæki. Ég biðst innilegrar afsökunar á því að hafa misboðið fólki með því. Síst af öllu vildi ég það. En ég held áfram að læra,“ sagði Björt á sínum tíma.
Framsóknarmaður í forsvari
Miðað við samfélagsmiðla er Girnó nýtt smákökufyrirtæki í Kópavogi. Heimasíðan er fábrotin og fáir fylgjendur enn sem komið er.

Á Facebook er skráður forsvarsmaður fyrirtækisins Stefán Atli Rúnarsson. Stefán Atli var í 8. sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í Kópavogi. En flokkur Ásdísar, Sjálfstæðisflokkurinn, og Framsóknarflokkur hafa verið í meirihlutasamstarfi á liðnu kjörtímabili. Eins og flestir vita vann Sjálfstæðisflokkurinn nú hreinan meirihluta í bæjarstjórn.
Í siðareglum bæjarfulltrúa Kópavogs segir: „Við nýtum ekki stöðu okkar, upplýsingar né þiggjum gjafir í starfi ef það er í þágu eigin hagsmuna eða hagsmuna tengdra aðila.“
DV sendi Ásdísi fyrirspurn vegna málsins en svör hafa ekki borist.