Árni Helgason hefur tekið sæti á Alþingi eftir afsögn Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur. Hann hóf kjörtímabilið sem annar varaþingmaður Suðvesturkjördæmis en er nú orðinn fullgildur þingmaður þar sem tveir efstu menn á lista flokksins hafa sagt af sér þingmennsku, fyrst Bjarni Benediktsson og nú Þórdís Kolbrún.
Við upphaf þingfundar var tilkynnt að Árni taki sæti í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í stað Vilhjálms Árnasonar. Hildur Sverrisdóttir tekur sæti Þórdísar Kolbrúnar í utanríkismálanefnd.