Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, hefur ákveðið að þiggja boð Hildar Björnsdóttur borgarstjóra um að taka að sér stjórnarformennsku í Orkuveitu Reykjavíkur.
Hildur gerði tillögu um þetta um leið og hún ákvað að ganga til samstarfs við Framsóknarflokkinn og Viðreisn í borgarstjórn en ekki við Miðflokkinn.
Ari hefur hugsað málið og greinir frá ákvörðun sinni í Facebook-færslu. Þar segir hann:
„OR er eitt mikilvægasta innviðafyrirtæki landsins og leikur lykilhlutverk í uppbyggingu samfélagsins. Kjarni starfseminnar er að sjá samfélaginu fyrir heitu og köldu vatni, rafmagni og fráveitu á sem hagstæðustum kjörum. Gríðarleg tækifæri eru til staðar í aukinni orkuöflun og nýrri tækni sem þarf að nýtast almenningi og atvinnulífi til bættra lífskjara á komandi árum.
Áherslur Miðflokksins varðandi OR og orkumálin eru mér veganesti inn í þetta verkefni. Þar hefur verið lögð áhersla á að nýtingar- og umráðaréttur orkulinda sé hjá þjóðinni, OR eigi að leggja áherslu á sína kjarnastarfsemi en stefna að því að draga sig út úr verkefnum á borð við Carbfix og Ljósleiðarann. Ennfremur að arðgreiðslur Orkuveitunnar hafi verið of háar og rekstur borgarinnar hafi verið of háður þeim. Því þurfi að breyta.
Það er og verður mikilvægasta hlutverk stjórnar að tryggja að þau verðmæti sem eru fólgin í Orkuveitunni þróist áfram með ábyrgum hætti eigendum og samfélaginu til hagsbóta. Ég hlakka til samstarfsins við stjórn, forstjóra, starfsfólk, eigendur og aðra hagaðila við að byggja áfram upp öfluga Orkuveitu sem þjónar samfélaginu í dag og skapar verðmæti til framtíðar.“