Ísak Herzog forseti Ísrael veitti í gærkvöldi Gadi Eisenkot umboð til ríkisstjórnarmyndunar.
Háttsettur maður innan flokksins segir þetta gert til að koma í veg fyrir að Benjamín Netanjahú forsætisráðherra geti stöðvað myndun nýrrar ríkisstjórnar. Ísraelski miðillinn Haaretz hefur þetta eftir honum ónafngreindum nú í morgun.
Ra'am hlaut átta þingsæti í kosningunum. Flokkar Eisenkots-megin náðu saman 48 þingmönnum en Netanjahú hefur stuðning 46 þingmanna. Glöggir lesendur sjá að báðir eru þeir langt frá þeim 61 sem þarf til að hafa meirihluta á þinginu sem telur 120 manns.
Ra'am vill samkvæmt heimildarmanni Haaretz meðal annars koma í veg fyrir að Eisenkot verði háður stuðningi ofurréttrúnaðarflokksins Yahadut HaTorah til þess að koma ríkisstjórn sinni á legg.
Vill koma á stjórnarskiptum
Mansour Abbas, leiðtogi Ra'am, segir flokkinn gera sér grein fyrir viðkvæmri stöðu stjórnarmyndunarviðræðnanna og vill því ekki greina nánar frá þeim samtölum sem nú fara fram.
Hann segir arabíska kjósendur hafa fjölmennt á kjörstað með það að markmiði að stuðla að stjórnarskiptum og að Ra'am muni breyta í samræmi við það.
Abbas segir flokkinn eiga í viðræðum við leiðtoga úr blokk Eisenkots, einkum Eisenkot sjálfan og Yair Lapid, leiðtoga B'Yachad og fyrrum forsætisráðherra.
Enn hafa þó ekki hafist eiginlegar stjórnarmyndunarviðræður milli blokkar Eisenkots og arabísku flokkanna. Ekki hefur heldur verið rætt formlega um samkomulag þar sem arabískur flokkur ver ríkisstjórnina falli án þess að ganga sjálfur inn í hana.
Sameinaði listinn mun ekki styðja stjórnina
Stærsti arabíski flokkurinn á þinginu, hinn svokallaði Sameinaði listi, ætlar ekki að greiða atkvæði með ríkisstjórn Eisenkots, að því er fram kemur í umfjöllun Haaretz. Flokkurinn hefur þó tekið fram að hann ætli heldur ekki að vinna að því að fella slíka stjórn.
Ra'am og Sameinaði listinn fengu saman nítján þingmenn í kosningunum og staða þeirra getur því reynst lykilatriði í því hvort Eisenkot tekst að mynda ríkisstjórn. Báðir flokkar ætla jafnframt að styðja tilraunir til að skipta um forseta þingsins þegar nýkjörið þing kemur saman á þriðjudag.
Þeir vilja einnig vinna að breytingum innan þingsins sem auðveldi stjórnarskipti og komi Netanjahú-stjórninni frá völdum.
Vilja breytingar í málefnum Araba
Þrátt fyrir að formlegar samningaviðræður séu ekki hafnar gera forystumenn Ra'am ráð fyrir því að ný ríkisstjórn myndi breyta stefnu stjórnvalda gagnvart arabískum borgurum Ísraels.
Þar nefna þeir sérstaklega baráttu gegn glæpum í arabískum samfélögum, niðurrif húsa Bedúína í Negev-eyðimörkinni og vandamál tengd byggingarleyfum.
Sameinaði listinn vill sömuleiðis koma á dagskrá aðgerðum til að sporna við glæpatíðni í arabískum samfélögum, draga úr niðurrifi húsa í arabískum bæjum og frysta svonefnd Kaminitz-lög, sem hertu verulega viðurlög vegna byggingarbrota.
Lögin beinast ekki sérstaklega að arabískum samfélögum en hafa að sögn Haaretz í framkvæmd að mestu verið notuð gegn arabískum borgurum.