Landris við Svartsengi hefur svo haldið áfram með stöðugum hraða en án þess þó að af gosi hafi orðið. Í síðasta stöðumati Veðurstofunnar sem gefið var út þann 30. júní síðastliðinn sagði að áframhaldandi hæg kvikusöfnun sem endar með nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi sé áfram líklegasta sviðsmyndin.
Þá sagði að Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni og nærri Grindavík sæe einnig áfram frekar lítil og með svipuðu móti og áður. Engin marktæk breyting hefur orðið á jarðskjálftavirkni síðustu vikurnar.
Hættumat á svæðinu er einnig óbreytt og verður það nú í gildi fram til þrítugasta september.