Annþór stofnar nýtt ráðgjafafyrirtæki

Annþór Kristján Karlsson, sem var um árabil einn þekktasti afbrotamaður landsins, hefur stofnað nýtt einkahlutafélag samkvæmt nýrri skráningu í Lögbirtingablaðinu.
Félagið ber heitið Karlsson Verk ehf. og var samþykkt 14. júlí síðastliðinn. Heimilisfang þess er í Hafnarfirði og skráður tilgangur félagsins er ráðgjöf.
Annþór er stofnandi félagsins og jafnframt skráður stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og prókúruhafi þess. Varamaður í stjórn er Birgitta Ýr Andreudóttir.
Hlutafé félagsins nemur 500 þúsund krónum og samkvæmt skráningu eru engar hömlur á meðferð hlutabréfa, en lausnarskylda er á hlutabréfum.
Annþór Kristján Karlsson vakti um árabil mikla athygli vegna umfangsmikillar afbrotasögu sinnar og hefur hlotið ítrekaða fangelsisdóma á Íslandi. Nú hefur hann að sögn snúið við blaðinu og skráð nýtt félag sem starfa á sviði ráðgjafar en í fyrra sagði Mannlíf frá því er Annþór stofnaði annað fyrirtæki, Karlsson Eignir ehf. Tilgangur félagsins var að halda utan um eignarhald en það var stofnað í desember á síðasta ári.