Sænska lögreglan hefur handtekið annan mann vegna sverðaárásarinnar sem var framin í framhaldsskóla í Fagersta í Svíþjóð föstudaginn 21. ágúst. Samkvæmt lögreglu hefur hann engin tengsl við skólann.
Sautján ára stúlka var drepin og þrír unglingsdrengir særðir, þar af tveir alvarlega, í árásinni á Brinell-skólann.
Liam Nebel, 18 ára fyrrverandi nemandi við skólann, var handtekinn á vettvangi eftir að lögregla skaut hann í fótinn. Hann er grunaður um manndráp og tilraun til manndráps.
Aftonbladet greinir frá því að lögregluna hafi fljótlega grunað að fleiri hafi átt aðild að ódæðinu. Samkvæmt heimildum blaðsins gerði lögregla rassíur í Stokkhólmi og nágrenni um helgina og var maður handtekinn þá.