Leikarinn og leikstjórinn Andy Serkis hefur svarað gagnrýni um „skort á fjölbreytileika“ í leikarahópi nýjustu kvikmyndarinnar úr heimi Hringadróttinssögu. Hann segir að ekki komi til greina að velja leikara eingöngu til að uppfylla kröfur um fjölbreytileika og að ráðningar verði byggðar á því hvað henti sögunni.
Serkis, sem er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Gollum í Hringadróttinssögu, er nú að leikstýra og fara með aðalhlutverk í myndinni The Hunt for Gollum, sem væntanleg er í kvikmyndahús um jólin 2027.
Segir Tolkien hafa notast við norræna goðafræði
Í viðtali við BBC var Serkis spurður út í hvernig stæði á því að nær allir leikararnir sem hafa verið tilkynntir í myndinni séu hvítir. Þar á meðal eru Jamie Dornan, Anya Taylor-Joy, Kate Winslet og Leo Woodall, auk þeirra munu Elijah Wood og Ian McKellen snúa aftur til leiks.
Serkis sagði að heimur J.R.R. Tolkien byggðist að miklu leyti á norrænni goðafræði.
„Tolkien var undir miklum áhrifum frá norrænni goðafræði og það sést í verkum hans,“ sagði Serkis.
Hann bætti við að Hérað, heimkynni hobbitanna, væri mjög afmarkaður heimur sem hefði lítinn áhuga á því sem gerðist utan landamæra sinna.
„Þeir hafa ekki miklar áhyggjur af því sem gerist utan Héraðsins og þeir vita að þeir vilja ekki að fólk komi inn fyrir landamærin,“ sagði hann.
Vill ekki „pólitískt rétt“ leikaraval
Serkis viðurkenndi að gagnrýni á skort á fjölbreytileika í Hringadróttinssögunni hefði fylgt kvikmyndunum í áratugi.
„Það hafa vissulega verið settar fram slíkar gagnrýnisraddir,“ sagði hann.
Hann lagði þó áherslu á að kvikmyndagerðarmenn myndarinnar hygðust ekki velja leikara eingöngu til að uppfylla kröfur um fjölbreytileika.
„Ég held ekki að við munum gera pólitískt rétta útgáfu þar sem leikarar eru ráðnir bara til þess að haka í box.“
Ný mynd kafar dýpra í sögu Gollum
The Hunt for Gollum gerist á tímabilinu milli The Hobbit og The Lord of the Rings og fjallar um leit Gandalfs að sannleikanum um hring Bilbos og fortíð Gollum.
Samkvæmt Serkis verður myndin eins konar sálfræðileg rannsókn á persónu Gollums áður en hann varð sú vera sem aðdáendur þekkja úr kvikmyndunum.
Myndin er ein af tveimur nýjum kvikmyndum sem nú eru í vinnslu og tengjast heimi Tolkien, en Serkis staðfesti jafnframt að hann muni ekki leikstýra hinni myndinni, Shadow of the Past, sem sjónvarpsmaðurinn Stephen Colbert vinnur að.