Það er ekki úr vegi að rifja aðeins upp hver þessi Andy Burnham er. Fyrir aðeins fimm vikum var hann borgarstjóri Manchester. 18. júní vann hann stórsigur í aukakosningum í Makerfield-kjördæmi á Englandi sem greiddi leið hans að leiðtogasæti Verkamannaflokksins og þar með embætti forsætisráðherra.
Hér er hægt að lesa meira um Burnham.
Andy Burnham, nýr leiðtogi Verkamannaflokksins, tekur við sem forsætisráðherra Bretlands í dag. Hann verður sjötti forsætisráðherra Bretlands á áratug. Theresa May tók við embættinu af David Cameron 13. júlí 2016 eftir þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem Bretar kusu að ganga út úr Evrópusambandinu.
Áður en Burnham tekur við flytur Keir Starmer sína síðustu ræðu fyrir utan Downing-stræti 10 í Lundúnum. Þaðan fer hann á fund Karls konungs þar sem hann biðst lausnar. Því næst fer Burnham á fund konungs þar sem hann verður formlega forsætisráðherra og verður beðinn um að mynda nýja ríkisstjórn.
Burnham fer þaðan í Downing-stræti þar sem hann flytur ræðu, sína fyrstu sem forsætisráðherra. Eftir það hefst hann handa við að mynda nýja ríkisstjórn.