Mannréttindasamtökin Amnesty International telja Ísraela hafa brotið alþjóðleg mannúðarlög í hið minnsta þremur árásum á Líbanon í mars. Samtökin segja í tilkynningu í dag að í þessum þremur árásum hafi herinn drepið 24 almenna borgara, þar af 12 börn.
Herinn hafi drepið heilu fjölskyldurnar og rannsaka eigi hvort hann hafi framið stríðsglæpi.
Amnesty rannsakaði þrjár árásir og safnaði gögnum um þær. Ísraelar hafa þó gert mun fleiri árásir á Líbanon. Amnesty telur grundvöll til að álykta að Ísraelsher hafi brotið alþjóðleg mannúðarlög.
Meðal ásakana Amnesty er að Ísraelar hafi ekki gert greinarmun á almennum borgurum og hernaðarlegum skotmörkum. Þá hafi árásum verið beint sérstaklega að almennum borgurum og að borgaralegum skotmörkum.
„Á einni viku þurrkaði Ísraelsher út heilu fjölskyldurnar, þar á meðal 12 börn og sýndi mannslífum almennra borgara mikla vanvirðingu. Hversu margar fjölskyldur þurfa enn að tína líkamsparta barna sinna úr rústum áður en þessi skelfilegi vítahringur stríðsglæpa tekur enda?“ spyr Kristine Beckerle, aðstoðarframkvæmdastjóri samtakanna í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku.
Hún segir alþjóðasamfélagið verða að bregðast við. Setja þurfi bann við sölu vopna til Ísraela, rannsaka mál þeirra sem beri ábyrgð á grimmdarverkum og sækja til saka.
Samið var um vopnahlé í síðasta mánuði en þrátt fyrir það hefur Ísraelsher gert árásir á Líbanon. Þá hafa Ísraelar sakað Hezbollah-samtökin um brot á vopnahléi.