Yfir 90 þúsund handahófskenndar handtökur hafa verið gerðar í El Salvador frá því að Nayib Bukele forseti landsins lýsti yfir neyðarástandi árið 2022. Minnst 470 hafa látið lífið í varðhaldi á þeim tíma. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Amnesty International sem birt var í gær.
Í nokkrum tilvikum þar sem fólk lést í varðhaldi voru ummerki um líkamlegt ofbeldi eða heilsufarslega vanrækslu sem samræmdist ekki opinberum gögnum um dánarorsök. Margir hinna látnu höfðu ekki hlotið dóm.
Í skýrslunni kemur fram að fjöldahandtökur, ásakanir um pyntingar og dauðsföll í varðhaldi sé ekki hægt að skilgreina sem stök atvik heldur frekar sem skipulagt ofbeldi sem miðað við umfang og skipulag gæti jafngilt glæpum gegn mannkyni.
Ríkisstjórn Bukele áður sökuð um brot á mannréttindum
Hópur lögfræðinga sakaði ríkisstjórn Buleke í mars um að brjóta mannréttindi með pyntingum og fyrir að nema fólk á brott.
Bukele lýsti yfir stríði gegn glæpagengjum þegar hann var kjörinn í embætti forseta árið 2019. Hann var endurkjörinn 2024 og ætlar að sækjast eftir endurkjöri í annað sinn í forsetakosningum í febrúar. Bukele lét breyta stjórnarskránni á síðasta ári sem gerir honum kleift að bjóða sig fram að nýju án tímatakmarkana.