Fjölskylda í Kaliforníu er miður sín eftir að Amazon sendill stal heimiliskettinum. Þjófnaðurinn náðist á öryggismyndavél. Lögregla rannsakar nú málið.
Breska blaðið The Independent greinir frá þessu.
Atvikið átti sér stað í borginni Bakersfield í Kaliforníufylki þann 14. maí síðastliðinn fyrir utan heimili Wilson fjölskyldunnar.
Eins og sést á myndbandi úr öryggismyndavél kom sendill frá Amazon upp að húsinu með pakka. Heimiliskötturinn Junie kom til að heilsa manninum sem beygði sig niður til að klappa Junie. En síðan tók hann köttinn upp og fór með hann burtu á bílnum sínum.
„Við trúum þessu ekki…. að einhver gæti gert svona lagað. Ég er í losti,“ segir Brenda Wilson, eigandi kattarins. Segist hún hafa óskað þess að Junie hefði ekki farið upp að manninum og að hún hefði reynt að komast í burtu frá honum. „En það er ekki í hennar eðli,“ segir Brenda.
Málið var tilkynnt til lögreglu og er málið nú til rannsóknar. Þá er Amazon einnig að skoða málið, en ökumaðurinn er ekki starfsmaður fyrirtækisins heldur undirverktaki. Hét Amazon því að veita lögreglu allar upplýsingar um málið.