Áfram er haldið að ræða úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald aðildarviðræðna við ESB af krafti á samfélagsmiðlum. Landsþekktur fjölmiðlamaður segist almennt ekki telja þjóðaratkvæðagreiðslur til góðs þar sem hinn almenni borgari sé yfirleitt ekki nógu greindur til að skilja flókn viðfangsefni. Kollegi hans segir að ESB hefði ekki verið neinn bjargvættur en segir umræðuna hafa leitt í ljós að íslenskt auðvald hafi ekki áhuga á góðu samfélagi fyrir alla sem búi á Íslandi þótt slíkt sé vel mögulegt.
Almenningur sagður ekki nógu greindur fyrir þjóðaratkvæðagreiðslur - Auðvaldið hafni samfélagi fyrir alla - Gagnkvæmar ásakanir um fjáraustur og hvatt til afsagna valkyrjanna