María Rut Kristinsdóttir þingmaður Viðreisnar segir allt tal um að Ísland glati fullveldi sínu gangi það inn í Evrópusambandið (ESB), að við þurfum að senda fólk í Evrópuher og að við töpum auðlindum okkar sé ekkert nema hræðsluáróður. Vert sé að hafa þetta í huga í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna á laugardaginn.Þingmaðurinn skrifar á Facebook:„Ísland er og verður fullvalda og sjálfstæð þjóð. Líka ef þjóðin ákveður að ljúka viðræðum við ESB. Líka ef við göngum síðan alla leið inn. Allt tal um annað er hræðsluáróður.“
„Allt tal um annað er hræðsluáróður“