Utanríkismálanefnd Alþingis kemur saman á morgun til að ræða niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Pawel Bartoszek, formaður nefndarinnar og þingmaður Viðreisnar, segir að niðurstaðan verði virt.
„Þjóðin svaraði þeirri spurningu hvort hún hefði áhuga á því að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið neitandi og það er bara skýr niðurstaða. Hana ber að virða og að sjálfsögðu verður það gert. Og það er bara ástæða til þess að þakka fyrir kosningabaráttuna og óska nei-hreyfingunni til hamingju með sigurinn,“ segir Pawel.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur sagt að Alþingi fái að ákveða næstu skref. Pawel telur að ákvörðun um að draga umsókn Íslands til baka verði ekki tekin á fundi utanríkismálanefndar.
„Ég þykist nú vita að það að slík ákvörðun verður nú alveg örugglega ekki tekin á nefndarfundi. Þarna er örugglega um það að ræða að ráðherra hyggst einfaldlega leita samráðs við nefndina vegna þess að ráðherra, get ég ímyndað mér, ætli sér að að hafa þá samband við Evrópusambandið og sína kollega þar og upplýsa um hvernig þessi atkvæðagreiðsla fór fram og um næstu skref,“ segir Pawel.
„Það er bara eðlilegt að haft sé samráð við utanríkismálanefnd og íslenska þingmenn áður en þessi samskipti eiga sér stað við erlenda ráðamenn.“