Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir alvarlegt ofbeldi gegn tveimur konum, annars vegar árið 2023 og hins vegar 2024.
Í fyrri kafla ákærunnar er maðurinn sagður hafa svipt konu frelsi sínu í nokkrar klukkustundir í íbúð í Hafnarfirði frá laugardegi til sunnudags árið 2023, þvingað hana með sér upp á efri hæð íbúðarinnar og nauðgað henni þar.
Í ákæru segir að konan hafi ýtt manninum af sér og reynt að komast undan en hann þá hrint henni fram af stigapalli, gengið í skrokk á henni og dregið hana á hárinu aftur upp á efri hæðina. Þar hafi hann svo haldið henni nauðugri þar til hann sofnaði.
Í ákærunni eru taldir upp margvíslegir áverkar sem konan hlaut í aðförunum, í andliti og á höfði, brjóstkassa, baki og höndum. Engir þeirra voru þó lífshættulegir.
Þetta telst samkvæmt ákæru varða við ákvæði hegningarlaga um nauðgun, frelsissviptingu og sérstaklega hættulega líkamsárás.
Konan gerir kröfu um að maðurinn greiði henni 15 milljónir króna í miskabætur.
Barði aðra konu tvisvar með flösku
Í síðari kafla ákærunnar er maðurinn ákærður fyrir árás á konu á sunnudagsmorgni í Hafnarfirði árið 2024. Hann er sagður hafa slegið konuna tvisvar í höfuðið með glerflösku, nokkrum sinnum sparkað í líkama hennar og höfuð og kýlt hana ítrekað. Engin bótakrafa frá konunni fylgir ákærunni.
Þegar maðurinn var handtekinn fundust á heimilinu rúm 73 grömm af amfetamíni og stunguvopn. Því til viðbótar var hann með 82 grömm af amfetamíni og 33 töflur af ópíóíðalyfinu OxyContin í vasanum. Fyrir þetta er hann ákærður fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot.
Ákæran var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur 25. júní. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu mætti maðurinn ekki fyrir dóm til að játa eða neita sök. Aðalmeðferð er fyrirhuguð í þrjá daga 3.-5. nóvember. Þinghaldið er lokað eins og jafnan er í kynferðisofbeldismálum.