Flugfélagið Air France og flugvélaframleiðandinn Airbus voru í dag sakfelld fyrir manndráp af gáleysi fyrir áfrýjunardómstóli í París. Dómurinn telur fyrirtækin að fullu ábyrg fyrir því að farþegaflugvél hrapaði í Atlantshafið í byrjun júní 2009. Allir 228 sem voru um borð fórust. Þetta er enn í dag mannskæðasta flugatvik í sögu Frakklands. Undirréttur hafði áður sýknað bæði fyrirtækin.
Flugvélin var á leið frá Rio de Janeiro í Brasilíu til Parísar þegar flugmennirnir misstu stjórn á vélinni og hún hrapaði í sjóinn. Flestir í vélinni voru frá Frakklandi og Brasilíu en alls var fólk af 33 þjóðernum um borð.
Við athugun kom í ljós að ástæðan hafi verið sú að leiðslur sem mæla flughraðann hafi stíflast vegna ísingar. Við það kviknaði á viðvörunarkerfi vélarinnar. Flugmennirnir reyndu að hækka flugið en við það stöðvaðist hún og hrapaði svo í sjóinn.
Brugðust skyldu sinni
Aðstandendur fórnarlambanna hafa lengi krafist þess að flugfélagið og framleiðandinn verði látin bera ábyrgð á hrapi vélarinnar. Bæði Air France og Airbus neituðu ábyrgð og sögðu það eingöngu skrifast á mistök flugmanna. Dómurinn tók ekki undir það. Þeir sögðu Air France hafa brugðist þeirri skyldu sinni að þjálfa flugmenn fyrir þær aðstæður sem komu upp í þessu tilviki. Þá hafi Airbus vanmetið hættuna af því þegar skynjarar hætta að virka og ekki upplýst áhafnir flugfélaga um þá hættu nægilega ítarlega.
Fyrirtækin þurfa hvort um sig að greiða 225 þúsund evrur – jafnvirði rúmlega 32 milljóna króna – í sekt. Þó að þetta þýði að refsingin sé fyrst og fremst táknræn er líklegt að dómurinn eigi eftir að skaða orðspor beggja fyrirtækja.
Allar líkur eru taldar á að málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar Frakklands.