Stjórnendur og starfsmenn íslenskra fyrirtækja í sjávarútvegi, sem sóttu sjávarútvegssýningu í Barcelona á Spáni í síðustu viku, urðu varir við talsverðan áhuga samstarfsaðila sinna í Evrópu á mögulegum aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið.
Um þúsund manns frá íslenskum fyrirtækjum sóttu þessa sýningu og kaupstefnu; eina þá stærstu sem haldin er í Evrópu á hverju ári. Þeirra á meðal var Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, sem ræddi þessi mál í Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun.
„Brim er skráð á markað og þess vegna höfum við verið að fá öðruvísi spurningar á síðustu vikum en áður. Við sjáum að það er verið að skoða félagið betur en áður af fjárfestum,“ sagði Guðmundur á Morgunvaktinni í morgun.
„Svo sjáum við líka að Norðmenn hafa mikinn áhuga á því sem við erum að gera. Við fengum mikið af spurningum um þetta frá Norðmönnum á sýningunni og svo auðvitað frá fjárfestum og bönkum því Brim er fjármagnað af stórum evrópskum bankastofnunum. Fjármagnseigendur vilja fyrirsjáanleika og Norðmenn skynja að þetta er allt öðruvísi núna hjá okkur en 2009 þegar ekki var samstaða í ríkisstjórn um aðildarumsóknina.“
Aðrir útgerðarmenn sem fréttastofa hefur rætt við hafa sömu eða svipaða sögu að segja af viðræðum við sína samstarfsaðila.
Guðmundur ræddi líka um nýlegar fréttir af ummælum Costas Kadis, sjávarútvegsstjóra Evrópusambandsins, sem gaf til kynna í síðustu viku að framkvæmdastjórn ESB væri tilbúin að bjóða Íslandi undanþágur frá fiskveiðilöggjöf sambandsins, kæmi til aðildarviðræðna.
„Ég var ánægður þegar ég sá þetta, og hann hefur kannski hlustað af athygli þegar ég var að messa yfir honum,“ sagði Guðmundur. Sjávarútvegsstjórinn heimsótti Brim þegar hann var á Íslandi fyrir nokkrum vikum.
„Ég veit svo sem ekki hversu mikið vald hann hefur gagnvart aðildarríkjunum tuttugu og sjö en við áttum fínar umræður um sjávarútveg og Draghi-skýrsluna [um leiðir til að auka samkeppnishæfni Evrópu] og hann viðurkenndi að regluverkið sem kemur frá Brussel þyrfti að vera skilvirkara og þau væru að vinna í því.“