Hefðbundnar sveiflur af völdum El Niño-veðurfyrirbærisins eru meiri en áður, segir fagstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofu Íslands, og valda öfgum í veðurfari víða um heim. Evrópska loftslagsstofnunin, Kópernikus, gaf í morgun út mánaðarlegt yfirlit yfir veðurfar.
Þar kemur fram að júní og júlí voru þeir heitustu í vesturhluta Evrópu frá því mælingar hófust.
Margt hefur áhrif á öfgar í veðri, þar á meðal loftslagsbreytingar. El Niño hefur mikil áhrif, einkum í Mið-Ameríku og norðurhluta Suður-Ameríku. Hitamet féllu hjá 110 milljónum manna allt frá Mexíkó til norðurhluta Brasilíu.
Ýmis þekkt veðurfrávik fylgja El Niño
Veðurfyrirbærið El Niño eða svokallaður El Niño-atburður er nú í gangi í hitabelti Kyrrahafsins. Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofu Íslands, segir veðurfyrirbærið hafa ýmis þekkt veðurfarsfrávik í för með sér.
„Aftakaúrkoma á sumum svæðum, þurrkar annars staðar, það er miklu heitara í heiminum þegar El Niño-atburður er í gangi.“
Í vor var fyrirséð hvert stefndi en ljóst var strax í upphafi að atburðurinn yrði einkar öflugur í ár. El Niño myndast á tveggja til sjö ára fresti en áhrifin eru mismikil.
„Það kemur á óvart hversu miklir þessir atburðir urðu því að þessir El niño-atburðir sem hafa verið á seinustu árum verða alltaf heitari og heitari og það virðist magna svörunina.“
Umfangið komi óþægilega á óvart
Halldór segir að þrátt fyrir að mögulegar öfgar í veðri hafi verið fyrirséðar komi umfangið óþægilega á óvart. Hann segir að veðurfar sumarsins sé að einhverju leyti birtingarmynd aukinna öfga í veðri.
„Margt af þessu er það sem kalla mætti hefðbundna El Niño-svörun en hún er að verða verri, sérstaklega hvað varðar hita og þurrka sem tengjast hita sem hafa síðan áhrif á skógarelda.“
Þrátt fyrir mikinn hita og skógarelda er aftakaúrkoma einnig veðurfrávik sem El Niño-atburðir hafa í för með sér. Halldór segir allt það sem búast mætti við af El Niño mætti eiga von á í meira umfangi en áður.