Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir áhöfn Banderos, skips Paul Watson-samtakanna. Þetta staðfestir Ásgeir Þór Ásgeirsson aðstoðarlögreglustjóri.
Áhöfnin var handtekin á fimmtudagskvöld eftir að hafa reynt að trufla för hvalveiðiskipsins Hvals 9. Landhelgisgæslan yfirtók skipið á fimmtudagskvöld og sigldi því til hafnar í Reykjavík í gær.
Skipið fer ekkert næstu daga
Tuttugu og einn er í áhöfninni og voru allir yfirheyrðir í gær, ýmist í varðskipinu Freyju eða á lögreglustöð.
Ásgeir segir að áhöfninni sé skylt að halda sig um borð í skipinu þar til annað er ákveðið. Samgöngustofa yfirfór Bandero í gær að beiðni lögreglu og segir Ásgeir stofnunina hafa afturkallað haffærni skipsins. Það fari því ekkert næstu daga og áhöfninni er gert að dúsa í því fram yfir helgi.
Í fréttum í gær kom fram að lögregla færi fram á brottvísun áhafnarinnar og endurkomubann og hefði sent greinargerð þess efnis til Útlendingastofnunar.