Húsið var byggt árið 1969 og er á tveimur hæðum með fimm svefnherbergi, tvö baðherbergi, eitt gestasalerni, tvö eldhús, stofu, tvær borðstofur, æfingasal, þvottahús, garðhús, vinnuherbergi, geymslu og nítján fermetra bílskúr.
Glæsilegur garður er kringum húsið með heitum potti og svo er hægt að hafa aukaíbúð til að leigja út með sérinngangi.
Húsið er æskuheimili Ágústu Evu en hún keypti það árið 2014 með þáverandi kærasta sínum, Jóni Viðari Arnþórssyni, á 25 milljónir. Nánar má lesa um eignina á fasteignavef Vísis og sjá myndir af húsinu hér að neðan: