Virðisaukaskattur á eldsneyti úr dælu verður lækkaður á morgun úr 24% í 11%. Verð á lítra af bensíni lækkar við það um 25 krónur að meðaltali miðað við núverandi verð og lítri af dísilolíu um 30 krónur.
Fyrir meðalneytandann má ætla að útgjöldin lækki um rúmlega 50 þúsund krónur yfir árið. Lækkunin er liður í tímabundnum efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar sem eiga að mæta óvissu og verðhækkunum á olíu á heimsvísu vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum.
Óvissa um þróun markaðsins
Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda fagnar því að Samkeppniseftirlitinu verði gert að vakta að lækkunin skili sér til neytenda.
„Bensín hefur hækkað um tæplega 60 krónur og dísilolían um tæplega 70 krónur þar sem hún hefur hækkað mest, þannig að það hafa verið miklar verðbreytingar frá byrjun mars þegar átökin þarna niður frá hófust og neytendur hafa fundið verulega fyrir því,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda.
Breytingin tekur gildi á morgun og stendur fram til 31. ágúst. Runólfur segir muna um verðlækkunina en hún breyti þó ekki óvissu um þróun markaða vegna átaka í Mið-Austurlöndum.
Samkeppniseftirlitið má sekta olíufélögin
Annar liður í aðgerðunum er tímabundið lagaákvæði sem skyldar olíufélögin til að skila verðlækkun að fullu til neytenda. Samkeppniseftirlitið fylgist með því að það sé gert og má sekta olíufélög sem brjóta lögin.
„Ég treysti því og það er ágætt að stjórnvöld ætli að hafa sérstakt aðhald með olíumarkaðinum hér. Þetta er fákeppnismarkaður. Og við höfum séð það að olíufélögin hafa verið að auka álagningu á liðnum árum. Það er bara hægt að sjá það á ársreikningum félaganna. Þannig að ef markaðinum er ekki treystandi til að halda úti öflugri samkeppni, þá stundum þarf aðhald,“ Runólfur Ólafsson.
Ökumenn sem fréttamaður ræddi við sem voru að taka bensín í dag sögðust ekki hafa haft hugmynd um lækkunina á morgun. Hún væri þó kærkomin.