Norska Stórþingið hefur samþykkt að breyta stjórnarskránni svo Ingiríður Alexandra prinsessa geti leitt ríkisstjórnina í fjarveru konungs og krónprinsins þegar aðstæður krefjast þess.
Samkvæmt frétt norska ríkisútvarpsins gat stjórnsýslu- og stjórnarskrárnefnd Stórþingsins út tilmæli þess efnis í gær. Stórþingið samþykkti einróma að breyta stjórnarskránni.
Í dag er það ríkisstjórn Noregs sem gegnir hlutverki þjóðarhöfingja í fjarveru konungs eða krónprinsins.