Áfrýjunarmál Erin Patterson hófst fyrir hæstarétti Melbourne-borgar í morgun. Hún var í september dæmd til lífstíðarfangelsis með möguleika á reynslulausn eftir 33 ár fyrir að myrða þrjár manneskjur með Wellington-steik sem innihélt banvæna eitursveppi.
Þau voru tengdaforeldrar hennar, Don og Gail Patterson, og roskin frænka eiginmannsins Simonar að nafni Heather Wilkinson. Patterson hlaut einnig dóm fyrir tilraun til að drepa eiginmann frænkunnar, Ian Wilkinson, sem veiktist illa en lifði máltíðina af.
Verjendur Patterson vilja að niðurstöðunni verði snúið við enda hefði dómarinn gert mikið úr sakleysislegum og lítt áreiðanlegum gögnum í málinu á borð við færslur hennar um að hafa séð banvæna sveppi og staðsetningu hennar út frá farsímamöstrum. Að Patterson hafi verið látin svara spurningum því tengdum jaðraði við dómsmorð.
Jafnframt hefðu kviðdómendur hafi gist á sama hóteli og vitni lögreglu og saksóknarar. Það drægi verulega úr trausti á að jafn áberandi dómsmál hefði fengið sanngjarna niðurstöðu. Reyndar viðurkenndi vörnin að ekkert benti til að kviðdómarar hefðu átt nokkur samskipti við aðra.
Sækjendur vilja breyta þeim tíma sem Patterson getur sótt um reynslulausn. Dómarinn hafi ekki áttað sig á að hún gæti þurft að dúsa í einangrun lungann úr 33 árum. Til stendur að réttarhöldin vari í tvo daga.