Áfrýjunardómstóll í Bandaríkjunum stöðvaði í gær tímabundið póstsendingar og afhendingu þungunarrofslyfsins mífepristóns í lyfjaverslunum.
Mífepristón er mest notaða þungunarrofslyfið í landinu og samkvæmt úrskurðinum þurfa allar bandarískar konur sem hyggja á þungunarrof að nálgast það í eigin persónu á heilbrigðisstofnunum.
Dómstóllinn, skipaður þremur íhaldssömum dómurum, sneri þannig við úrskurði lægra dómstigs sem heimilaði póstsendingu á lyfinu meðan Matvæla- og lyfjaeftirlitið endurskoðaði reglur um notkun þess.
Eftirlitið heimilaði notkun lyfsins fyrst árið 2000. Louisiana-ríki, þar sem einhver ströngustu lög um þungunarrof gilda, höfðaði mál gegn stofnuninni. Talsmenn þess að rannsaka þurfi öryggi mífepristóns hafa máli sínu til stuðnings vitnað í óritrýnda rannsókn hugveitu, sem birtist á vefsíðu hennar en ekki í vísindatímariti.
Málinu verður líklega áfrýjað til Hæstaréttar
Liz Murrill, dómsmálaráðherra Louisiana, sagði úrskurðinn sigur fyrir lífið. Áralangri martröð morða á ófæddum börnum um gervöll Bandaríkin sé lokið.
Nancy Northup, forstöðumaður Miðstöðvar æxlunarréttinda, sagði málið ekki snúast um vísindi heldur að gera möguleika kvenna til þungunarrofs eins dýra og óaðgengilega og unnt sé. Líklegt sé að málinu verið vísað til Hæstaréttar.
Senn verða fjögur ár liðin síðan Hæstiréttur sneri úrskurði í máli Roe gegn Wade sem tryggði stjórnarskrárvarinn rétt til þungunarrofs í Bandaríkjunum. Nú gilda því lög hvers ríkis fyrir sig um aðgengi að þungunarrofi. Síðan þá hafa 20 ríki bannað eða sett þungar skorður við þungunarrofi.