Af­hroð Rússa í Malí: Víga­menn segjast stjórna stórum hluta landsins - Vísir

Af­hroð Rússa í Malí: Víga­menn segjast stjórna stórum hluta landsins - Vísir

Af­hroð Rússa í Malí: Víga­menn segjast stjórna stórum hluta landsins - Vísir

Meðal annars réðust þeir á helstu herstöð landsins og felldu þar varnarmálaráðherra ríkisins og þá ráku þeir rússneska málaliða á brott frá borginni Kidal.

Þó kurlin séu byrjuð að berast til grafar er enn margt óljóst um stöðuna í Malí. Uppreisnar- og vígamenn segjast stjórna stærstum hluta Malí og hafa lýst yfir umsátri um Bamako, höfuðborg landsins.

Talsmaður öflugs vígahóps í Malí lýsti því yfir í dag að engum bílum eða fótgangandi yrði hleypt inn í höfuðborgina. Hann biðlaði einnig til almennings um að standa ekki í vegi víga- og uppreisnarmanna, annars verði ráðist á það fólk eins og hermenn.

Rússar hafa haldið því fram að Afríkudeildin svokallaða hafi komið í veg fyrir valdarán, sem stutt hafi verið af Vesturlöndum, eins og Frakklandi, og Úkraínu.

Sífellt versnandi ástand

Árið 2012 tóku Túaregar, sem hafa í áratugi barist fyrir eigin ríki í eyðimörkinni í norðurhluta Malí, höndum saman við vígamenn og tókst þeim saman að ná stjórn á um tveimur þriðju af Malí.

Þegar uppreisnar- og vígamennirnir nálguðust Bamako, höfuðborg Malí, kölluðu þáverandi stjórnvöld landsins eftir aðstoð frá Frökkum, fyrrverandi nýlenduherrum Malí. Frakkar og stjórnarherinn ráku þessa uppreisnar- og vígamenn aftur og náðu aftur tökum á mestöllu landinu. Þúsundir friðagæsluliða, sem voru flestir frá öðrum ríkjum Vestur-Afríku, aðstoðuðu svo við að tryggja friðinn.

Árið 2020 gerðu hermenn uppreisn í Malí og tóku þar völd, aðrir hermenn gerðu svo fljótt annað valdarán og mynduðu aðra herforingjastjórn. Bæði valdaránin voru framin á þeim grundvelli að fyrrverandi stjórnvöld hefðu ekki staðið sig nægilega vel í baráttunni gegn uppreisnar- og vígahópum.

Að endingu vísaði núverandi herforingjastjórn Malí Frökkum úr landi og leitaði þess í stað til Rússa.

Fyrst leituðu þeir til málaliðahópsins Wagner, sem var í eigu rússneska auðjöfursins Jevgenís Prígósjín. Fyrstu málaliðarnir fóru til Malí í lok árs 2021 en Prígósjín dó svo, eins og frægt er, árið 2023 þegar sprenging varð um borð í flugvél hans skammt frá Moskvu. Þangað hafði auðjöfurinn ferðast til að reyna að halda stjórn á veldi sínu og málaliðahópnum eftir misheppnaða uppreisn hans gegn Pútín sumarið 2023.

Varnarmálaráðuneyti Rússlands var þá að taka yfir samninga Wagner við einræðisherra og önnur stjórnvöld í Afríku og var Afríkudeildin stofnuð. Margir af málaliðum Wagner voru ráðnir þangað en aðferðirnar eru öðruvísi. Meðlimir Wagner börðust reglulega með hermönnum í þeim löndum sem þeir störfuðu en undir stjórn Afríkudeildarinnar og ráðuneytisins er meiri áhersla lögð á þjálfun og ráðgjöf.

Sjá einnig: Ná ekki að leika árangur Wagner eftir

Talið er að allt að 2.500 rússneskir málaliðar hafi verið í Malí.

Rússar hafa á undanförnum árum verið sakaðir um ýmis ódæði í Malí. Sérfræðingar hafa sagð að harðneskja Rússa og ódæði þeirra hafi auðvelda víga- og uppreisnarhópum að laða að nýja menn.

Sjá einnig: Hermenn og rússneskir málaliðar tóku hundruð af lífi í Malí

Á undanförnum árum hefur ástandið í Malí versnað til muna og umsvif bæði Túarega og annarra vígahópa, hafa aukist. Nú virðist sem sagan hafi að miklu leyti endurtekið sig, eins og hún á gjarnan til.

Nýtt bandalag

Túaregar, sem mynduðu árið 2024 hóp sem kallast Þjóðfrelsisfylking Azawad (e. Azawad Liberation Front, FLA), hafa aftur gert samkomulag við vígamenn í Malí og að þessu sinni var samkomulag gert við meðlimi íslamistahreyfingarinnar Jama'at Nusrat al-Islam wal-Muslimin (JNIM) en meðlimir þeirra samtaka eru hliðhollir al-Qaeda. Samtökin eru starfrækt víða á Sahel-svæðinu svokallaða, en þar er átt við þurrt svæði suður af Sahara-eyðimörkinni sem nær yfir þvera Afríku.

Vígahópar hafa lengi haldið til á þessu svæði. Þar hagnast þeir á óskráðum gullnámum, auk þess sem hóparnir skattleggja íbúa á yfirráðasvæðum sínum og fjármagna sig með ránum.

Hóparnir fjármagna sig einnig með smygli á fíkniefnum og fólki, svo eitthvað sé nefnt.

Sjá einnig: Stór hluti Sahel-svæðisins í hættu

Þessir hópar hafa áður starfað saman og kannski sérstaklega um sumarið 2024, þegar meðlimir JNIM og Túaregar sátu fyrir bílalest rússneskra málaliða og hermanna úr stjórnarhernum. Þá sögðust Túaregar hafa fellt tugi Rússa. Samstarfið hefur þó aldrei verið jafn umfangsmikið og nú.

Við dögun á laugardaginn gerðu meðlimir FLA og JNIM árásir víðsvegar um landið, eins og áður hefur komið fram. Meðal annars var ráðist á nokkra bæi og herstöðvar nærri Bamako. Í einni þeirra var Sadio Camara, varnarmálaráðherra sem var af mörgum talinn næstvaldamesti maður Malí og mikill bandamaður Rússa, felldur.

Samkvæmt frétt France24 virðist sem að hann hafi verið felldur í sjálfsmorðsárás þegar maður sprengdi sendiferðabíl í loft upp við heimili hans í bænum Kati, skammt frá Bamaka. Sá bær hýsir höfuðstöðvar stjórnarhersins.

Assimi Goita, stjórnandi herforingjastjórnarinnar, sást á þriðjudag í fyrsta sinn á opinberum vettvangi síðan árásirnar hófust. Þá var birt mynd af honum á fundi með sendiherra Rússlands í Malí og öðrum rússneskum embættismönnum.

Á sama tíma og Camara var banað voru árásir gerðar í norðurhluta landsins, þar sem ítök FLA og JNIM þykja meiri. Þar virðast hóparnir hafa tekið stjórn á þó nokkrum bæjum og borgum en þar á meðal er borgin Kidal.

Þar var hópur rússneskra málaliða en svo virðist sem leiðtogar FLA hafi gert samkomulag við Rússa um að málaliðunum yrði leyft að yfirgefa borgina.

Stjórnarherinn og Afríkudeildin tóku Kidal úr höndum uppreisnarmanna árið 2023. Þá markaði það mikinn og góðan áfanga í baráttunni gegn Túaregum og JNIM.

Le Monde segir að minnsta kosti fjögur hundruð málaliðar úr rússnesku Afríkudeildinni hafi hörfað frá Kidal, eða verið fylgt þaðan af uppreisnar- og vígamönnum.

Í yfirlýsingum sem gefnar voru út um helgina kölluðu leiðtogar JNIM og FLA eftir því að Rússar hættu samstarfi við herforingjastjórn Malí. Þannig gætu Rússar komist hjá því að verða skotmörk og tryggt samskipti við þá í framtíðinni, eftir væntanlega yfirtöku þeirra í Malí.

Vígamenn Íslamska ríkisins á Sahel-svæðinu gerðu einnig árásir á stjórnarherinn og Afríkudeildina. Í einu tilfelli sátu vígamenn fyrir bílalest hersins og Afríkudeildarinnar eftir að þeir hörfuðu frá varðstöð þeirra í Labbezanga, samkvæmt sérfræðingi sem vaktað hefur átökin.

Sitja um Bamako

Abu Hudheifah al-Bambari, talsmaður JNIM, birti á þriðjudaginn ávarp á netinu, þar sem hann lýsti því yfir að umsátur væri nú hafið um Bamako. Engum yrði hleypt inn í höfuðborgina.

Þá talaði hann einnig um árásina gegn varnarmálaráðherranum og kallaði eftir því að óbreyttir borgarar reyndu ekki að standa í vegi meðlima JNIM og FLA. Annars yrðu þeir skotmörk, eins og hermenn.

Óljóst hvort bandalagið verði langlíft

Í samtali við France24 segir einn sérfræðingur hugveitu sem sérhæfir sig í svæðinu að árásir helgarinnar marki nýjan fasa í baráttunni gegn vígahópum í Malí.

„Sú staðreynd að þeim hafi tekist að safna saman svo miklum mönnum, sérstaklega í kringum Bamako og Kati, án þess að komist hafi upp um þá og að ríkisstjórnin hafi ekki getað stöðvað þá, sýnir hversu slæmt öryggisástandið er. Meira að segja í kringum höfuðborgina,“ sagði Andrew Leibovich.

Aðrir greinendur segja að með árásunum kringum Bamako hafi leiðtogar FLA og JNIM viljað halda hernum og Rússum uppteknum á meðan frekari árásir yrðu gerðar í norðurhluta landsins. Eins og áður hefur komið fram virðist sem þær árásir hafi borið árangur.

Hóparnir náðu nokkrum bæjum og borgum þar og í nokkrum tilfellum eftir að samkomulag náðist um undanhald Afríkudeildarinnar og hermanna.

Sérfræðingar vara þó við því að hóparnir tveir eigi í raun ekki mikið sameiginlegt, fyrir utan sameiginlegan óvin í herforingjastjórninni.

France24 hefur til að mynda eftir Ulf Laessing, sérfræðingi um Sahel-svæðið, að leiðtogar bæði FLA og JNIM viti að þeir geti ómögulega einir síns liðs velt herforingjastjórninni úr sessi. Þess vegna hafi þeir nú tekið höndum saman.

Laessing bendir þó á að eftir samkomulagið 2012 hafi vígahóparnir slitið á tengslin við Túarega og það sama gæti gerst núna. Túaregar og JNIM séu ekki líklegir til að stýra Malí í sameiningu, takist þeim yfir höfuð að velta herforingjastjórninni úr sessi.

Hvað framtíðin ber í skauti sér í Malí þykir sérfræðingum erfitt að segja til um að svo stöddu. Staðan sé að mörgu leyti mjög óljós en flestir virðast þeir sammála um að staðan muni varla skána fyrir herforingjastjórnina, eins og tekið er fram í skýrslu Africa center for strategic studies.

Laessing segir til að mynda herforingjastjórnin í Malí, eins og bandamenn hennar í Búrkína Fasó og Níger, eigi fáa vini. Þá sé yfirhöfuð mjög ólíklegt að Frakkar eða aðrir í Evrópu væru tilbúnir til að aðstoða þessar ríkisstjórnir hernaðarlega og enn fremur sé óljóst hvort hægt sé að koma á stöðugleika í Malí með hernaðarvaldi.

#afhroð #malí #rússa #segjast #vígamenn


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262875485d/afhrod-russa-i-mali-vigamenn-segjast-stjorna-storum-hluta-landsins

📰 Aðrar fréttir

Láku upplýsingum um starfsmenn heimavarnarráðuneytisins
📅 29.10.2026 👁️ 2
Láku upplýsingum um starfsmenn heimavarnarráðuneytisins
Upplýsingum um fleiri en 41 þúsund starfsmenn heimavarnarráðuneytis Bandaríkjanna var lekið á netið í gær af óhagnaðardrifnum samtökum uppljóstrara se...
Spain begins three days of mourning after train crash kills dozens
📅 29.10.2026 👁️ 2
Spain begins three days of mourning after train crash kills dozens
Emergency teams worked through the night to find victims after one of the worst rail disasters in Europe's modern history.
Stjórnmálaflokkur ætlar að kæra lestarinnviðafyrirtækið
📅 29.10.2026 👁️ 4
Stjórnmálaflokkur ætlar að kæra lestarinnviðafyrirtækið
Vox, þjóðernissinnaður fjarhægriflokkur á Spáni, hefur segist ætla að kæra fyrirtækið ADIF, sem sér um lestarinnviði landsins, fyrir manndráp af gáley...
Ætla að sekta mótmælendur um fjórföld mánaðarlaun
📅 29.10.2026 👁️ 4
Ætla að sekta mótmælendur um fjórföld mánaðarlaun
Albönsk stjórnvöld hafa ákveðið að sekta róstusama mótmælendur. Sektin hljóðar upp á 500 þúsund albanska leks, sem samsvarar um það bil 750 þúsund ísl...
Þjóðaröryggisráð Moldóvu kallað til vegna umfangsmikillar netárásar
📅 29.10.2026 👁️ 4
Þjóðaröryggisráð Moldóvu kallað til vegna umfangsmikillar netárásar
Þjóðaröryggisráð Moldóvu hefur boðað til fundar vegna netárásar sem gerð var á gagnabanka stjórnvalda. Árásin átti sér stað dagana 19. til 23. október...
George Michael: Family row over dozens items up for auction
📅 29.10.2026 👁️ 4
George Michael: Family row over dozens items up for auction
The brother of the singer's late personal assistant says she would not have wanted the items to be sold.
Notch setur glæsihúsið á sölu - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 4
Notch setur glæsihúsið á sölu - Vísir
Sænski milljarðamæringurinn, sem er einnig þekktur sem „Notch“, greiddi sömu fjárhæð fyrir eignina þegar hann festi á henni kaup árið 2014, að því er ...
Fjar­lægðu mynd­skeið af golfhermi úr Kveiksþætti - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Fjar­lægðu mynd­skeið af golfhermi úr Kveiksþætti - Vísir
Greint var frá því í kvöld að þætti Kveiks um einkarekin búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda hefði verið kippt út af vef Ríkisútvarpsins tíma...
Floods: Building boom in Nepal and India's Uttarakhand puts 300,000 people in path of potential Himalayan disasters, study suggests
📅 28.10.2026 👁️ 4
Floods: Building boom in Nepal and India's Uttarakhand puts 300,000 people in path of potential Himalayan disasters, study suggests
The construction of tourism facilities, housing, and infrastructure has surged in parts of Nepal and India's Uttarakhand.
Stórhættulegur morðingi slapp úr fangelsi – Óttast að hann drepi aftur
📅 28.10.2026 👁️ 3
Stórhættulegur morðingi slapp úr fangelsi – Óttast að hann drepi aftur
Stórhættulegur morðingi slapp úr fangelsi í Tennessee fylki á sunnudagskvöld. Þeir sem þekkja til óttast að hann muni drepa aftur þar sem hann hafi en...
Bolsonaro kveðst réttkjörinn forseti Brasilíu
📅 28.10.2026 👁️ 4
Bolsonaro kveðst réttkjörinn forseti Brasilíu
„Ég er réttkjörinn forseti og glæpamennirnir sem stálu kosningunum í Brasilíu tilheyra glæpasamtökum sem hafa komið á harðstjórn,“ sagði brasilíski fo...
Details of thousands of US immigration agents leaked in major hack
📅 28.10.2026 👁️ 4
Details of thousands of US immigration agents leaked in major hack
A group called the Department of Peace released information on more than 41,000 DHS staff.
Barnalæknir segir mistök að senda eins árs börn í leikskóla
📅 28.10.2026 👁️ 4
Barnalæknir segir mistök að senda eins árs börn í leikskóla
Norskur barnalæknir og prófessor við Háskólann í Ósló telur að börn eigi almennt ekki að hefja leikskólagöngu fyrr en við tveggja til þriggja ára aldu...
Sigurjón: „Það er verulegt áhyggjuefni“
📅 28.10.2026 👁️ 4
Sigurjón: „Það er verulegt áhyggjuefni“
Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, segir það verulegt áhyggjuefni að Karim Askari, formaður Stofnunar múslíma á Íslandi, fordæmi ekki skil...
King Charles shows off dance moves on second day of Caribbean tour
📅 28.10.2026 👁️ 4
King Charles shows off dance moves on second day of Caribbean tour
Earlier in the day, the King paid his respects to the island's fallen servicemen and women.
High-speed train crash kills at least 68 people in Spain
📅 28.10.2026 👁️ 4
High-speed train crash kills at least 68 people in Spain
The crash, between a moving train and another that was stopped further up the track, was caused by an "inexplicable" error, the transport minister sai...
Myndbroti úr golfhermi skipt út í nýjasta þætti Kveiks
📅 28.10.2026 👁️ 4
Myndbroti úr golfhermi skipt út í nýjasta þætti Kveiks
Stutt myndbrot innan úr golfhermi fyrirtækisins Gullkylfunnar birtist í Kveik í gærkvöldi.Myndefnið var tekið af samfélagsmiðli fyrirtækisins Vopnabúr...
Gagnrýni á frumvarp um leigubremsu komi ekki á óvart
📅 28.10.2026 👁️ 4
Gagnrýni á frumvarp um leigubremsu komi ekki á óvart
Leigufélög almennt óánægð með takmarkanir á leiguRagnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir mikilvægt að halda til haga fyrir hverj...
Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið - Vísir
Tímaritið Life hóf göngu sína sem vikurit árið 1936 og fjallaði um stórviðburði, áhrifafólk og hversdagslegan veruleika 20. aldarinnar. Það náði hátin...
Death of US actress Hayden Panettiere ruled accidental, ending local police probe
📅 28.10.2026 👁️ 4
Death of US actress Hayden Panettiere ruled accidental, ending local police probe
The Heroes and Nashville star died in August from the toxic effects of fentanyl, Xanax and several other drugs.
Lýsa upp skammdegið með list
📅 28.10.2026 👁️ 5
Lýsa upp skammdegið með list
Hátíðin hefur verið haldin síðan um aldamót. Fjölmargir viðburðir eru á dagskrá á Austurlandi í tengslum við hátíðina.Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, ...
Stórtíðindi um árangurinn af þyngdarstjórnunarlyfinu retatrútíð - Er Ozempic búið að vera?
📅 28.10.2026 👁️ 5
Stórtíðindi um árangurinn af þyngdarstjórnunarlyfinu retatrútíð - Er Ozempic búið að vera?
Heimurinn bíður með eftirvæntingu eftir þyngdarstjórnunarlyfinu retatrútíð (einnig þekkt sem reta) sem lyfjaframleiðandinn Eli Lilly er nú með í klíní...
Þurft að dvelja í ein­angrunar­klefum vegna pláss­leysis - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 5
Þurft að dvelja í ein­angrunar­klefum vegna pláss­leysis - Vísir
Þetta kemur fram í skriflegu svari Rögnu Bjarnadóttur, forstjóra Fangelsismálstofnunar, við fyrirspurn fréttastofu. Nýlega var fjallað um kvörtun kven...
Heiða Ósk kemur Klettabæ til varnar: „Þá var barnið mitt gripið og öll fjölskyldan mín“
📅 28.10.2026 👁️ 5
Heiða Ósk kemur Klettabæ til varnar: „Þá var barnið mitt gripið og öll fjölskyldan mín“
„Þetta var þungur þáttur. Hann var þungur, ósanngjarn, einhliða og ég varð fyrir mjög miklum vonbrigðum,“ segir Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir, móðir ...
Stýrivextir ó­breyttir og stutt í kosningar - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 5
Stýrivextir ó­breyttir og stutt í kosningar - Vísir
Peningastefnunefnd bankans tilkynnti í dag að vextir yrðu hvorki hækkaðir né lækkaðir þrátt fyrir að litlar sem engar framfarir hafi orðið í baráttunn...
Losun gróðurhúsalofttegunda meiri á Íslandi en í öðrum Evrópulöndum
📅 28.10.2026 👁️ 5
Losun gróðurhúsalofttegunda meiri á Íslandi en í öðrum Evrópulöndum
Það er töluvert langt í land þegar kemur að losun gróðurhúsalofttegunda á mann á Íslandi borið saman við önnur lönd í Evrópu. Þörf er á samstilltu áta...
„Mér finnst það al­var­legt“ - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 5
„Mér finnst það al­var­legt“ - Vísir
Þetta segir Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um störf lögr...
Hvað eiga tveir kennarar sameiginlegt? Einn á Akureyri annar í Södertelje?
📅 28.10.2026 👁️ 5
Hvað eiga tveir kennarar sameiginlegt? Einn á Akureyri annar í Södertelje?
Hvað eiga tveir kennarar sameiginlegt? Einn á Akureyri annar í Södertelje? Fréttin28. október 2026InnlendarLeave a Comment Samsett mynd: Selma Gamalel...
Komi mest á óvart að Netanjahú hafi ekki tapað meira fylgi
📅 28.10.2026 👁️ 5
Komi mest á óvart að Netanjahú hafi ekki tapað meira fylgi
Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í sögu Miðausturlanda, segir það koma mest á óvart í þingkosningunum í Ísrael að Netanjahú hafi ekki tapað meir...
Leitar barna úr úrræðum í hverjum mánuði
📅 28.10.2026 👁️ 5
Leitar barna úr úrræðum í hverjum mánuði
Fjallað var um búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda í Kveik. Þar kom meðal annars fram að slíkum úrræðum hefur fjölgað úr einu í sjö á tíu áru...
Óvíst hvort fjármagn fylgi fjölgun lögreglumanna
📅 28.10.2026 👁️ 5
Óvíst hvort fjármagn fylgi fjölgun lögreglumanna
Lögreglumönnum fjölgað um 50 á hverju ári til 2031Fjölga á lögreglumönnum um 50 á ári samkvæmt nýrri löggæsluáætlun til ársins 2031. Þá eiga lögreglum...
Leikstjóri heimildarmyndar um Matthew Perry útskýrir hvers vegna Friends meðleikarar hans eru ekki með í henni
📅 28.10.2026 👁️ 4
Leikstjóri heimildarmyndar um Matthew Perry útskýrir hvers vegna Friends meðleikarar hans eru ekki með í henni
Ný heimildarmynd um Matthew Perry er nú komin á Netflix, en þar vantar nokkur mjög kunnugleg andlit.Í dag (28. október) eru liðin þrjú ár frá skyndile...
„Ég ætla alla­vega að deyja á Ís­landi“ - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
„Ég ætla alla­vega að deyja á Ís­landi“ - Vísir
Eyrún flutti út fyrir sex árum og býr með kærastanum sínum Oskari, sem er líka leikari. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Eyrún tókst á við sit...
Hafi ekki verið í form­legri heim­sókn í moskunni - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Hafi ekki verið í form­legri heim­sókn í moskunni - Vísir
Tilefnið er frétt Morgunblaðsins frá því í gær um að Usmani hefði haldið trúarlegan fyrirlestur á samkomu Stórmoskunnar við Bústaðaveg í Reykjavík á m...
Man sentenced to more than 37 years for murder in south Tenerife
📅 28.10.2026 👁️ 4
Man sentenced to more than 37 years for murder in south Tenerife
The Provincial Court of Santa Cruz de Tenerife has sentenced a man to 37 years and six months in prison for murdering his partner’s brother, attemptin...
Kveiksþætti kippt út tímabundið - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Kveiksþætti kippt út tímabundið - Vísir
„Hann er á leiðinni aftur inn,“ segir Ragnhildur Þrastardóttir, ritstjóri Kveiks, um þáttinn í samtali við Vísi. Hún segir að uppfæra hafi þurft mynde...
Evrópskir hlutabréfamarkaðir náðu sér eftir lækkun – óeirðir í Frakklandi og afkoma HSBC valda áhyggjum
📅 28.10.2026 👁️ 4
Evrópskir hlutabréfamarkaðir náðu sér eftir lækkun – óeirðir í Frakklandi og afkoma HSBC valda áhyggjum
Evrópskir hlutabréfamarkaðir náðu sér eftir lækkun – óeirðir í Frakklandi og afkoma HSBC valda áhyggjum Fréttin28. október 2026Erlent, Evrópusambandið...
Múslímavandi Samfylkingar
📅 28.10.2026 👁️ 4
Múslímavandi Samfylkingar
Múslímavandi Samfylkingar Fréttin28. október 2026Innlent, Páll Vilhjálmsson, PistlarLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Talsmaður Samfylkingar ...
Söfnuðust saman við sendi­ráðið og mót­mæltu refsiaðgerðum - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Söfnuðust saman við sendi­ráðið og mót­mæltu refsiaðgerðum - Vísir
Í tilkynningu sem birt var á Facebook-síðu sendiráðsins kom fram að sendiráðið yrði opnað á réttum tíma í fyrramálið, fimmtudaginn 29. október. Þá vær...
Dæmdir fyrir að kveikja í Teslu-bifreið lögreglukonu
📅 28.10.2026 👁️ 4
Dæmdir fyrir að kveikja í Teslu-bifreið lögreglukonu
Þrír menn hafa verið sakfelldir í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að kveikja í Teslu-bifreið rannsóknarlögreglukonu hjá Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu....
What the Budget offers for under 25s - and what it leaves out
📅 28.10.2026 👁️ 4
What the Budget offers for under 25s - and what it leaves out
The chancellor announced a series of measures which will impact under-25 year-olds from housing to minimum wage.
Mótmæltu viðskiptaþvingunum Bandaríkjanna gegn Kúbu
📅 28.10.2026 👁️ 4
Mótmæltu viðskiptaþvingunum Bandaríkjanna gegn Kúbu
VÍK - Vináttufélag Íslands og Kúbu efndi til mótmæla fyrir utan bandaríska sendiráðið við Engjateig í dag. Mótmælin voru haldin vegna atkvæðagreiðslu ...
Flávio Bolsonaro lands in Miami after defeat in Brazil's presidential election
📅 28.10.2026 👁️ 5
Flávio Bolsonaro lands in Miami after defeat in Brazil's presidential election
His arrival in the US ends speculation about his whereabouts after he failed to comply with an order to surrender his passports.
Flávio Bolsonaro denies fleeing Brazil after landing in Miami
📅 28.10.2026 👁️ 4
Flávio Bolsonaro denies fleeing Brazil after landing in Miami
The defeated Brazilian candidate claims to be the victim of a coup d’état and political persecution, recycling unsubstantiated allegations of “elector...
Hyggst þyngja refsingar við að hag­nýta börn til af­brota - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Hyggst þyngja refsingar við að hag­nýta börn til af­brota - Vísir
Þetta segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra Viðreisnar, í samtali við fréttastofu að loknum kynningarfundi þar sem ný löggæsluáætl...
„Séum til­búin þegar og ef þessi veru­leiki birtist okkur“ - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
„Séum til­búin þegar og ef þessi veru­leiki birtist okkur“ - Vísir
Þetta segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra Viðreisnar, í samtali við fréttastofu að loknum kynningarfundi þar sem ný löggæsluáætl...
Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lög­reglu­manns eftir allt saman - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lög­reglu­manns eftir allt saman - Vísir
Í ákæru á hendur mönnunum þremur, sem hafa allir neitað sök, segir að um hafi verið að ræða Teslu Model 3, 2020 árgerð, sem var í eigu lögreglumanns o...
John Healey unveils £100 for energy bills and bank tax in first Budget
📅 28.10.2026 👁️ 6
John Healey unveils £100 for energy bills and bank tax in first Budget
The chancellor targets the cost of living amid global economic turmoil but opposition parties say he has not been bold enough.
Hasarmyndastjarnan orðin óþekkjanleg og búin að skipta um starfsvettvang
📅 28.10.2026 👁️ 5
Hasarmyndastjarnan orðin óþekkjanleg og búin að skipta um starfsvettvang
Leikkonan Jenette Goldstein, sem gerði garðinn frægan í hasarmyndum og vísindaskáldskap, á níunda og tíunda áratugnum er óþekkjanleg í dag. Hún hefur ...
Telja það samningsbrot að Kópavogsbær hafi málað yfir útilistaverk
📅 28.10.2026 👁️ 4
Telja það samningsbrot að Kópavogsbær hafi málað yfir útilistaverk
Stjórn Bandalags íslenskra listamanna telur að samningsbrot hafi átt sér stað þegar Kópavogsbær tók þá ákvörðun að mála yfir Sólarslóð, útilistaverk T...