Upptaka evru gæti haft í för með sér lægri vexti, minni viðskiptakostnað, aukinn stöðugleika og betri aðgang að fjármálamörkuðum.
Þetta er meðal niðurstaðna sérfræðingahóps sem fjármála- og efnahagsráðuneytið fól að vinna skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Hópurinn hefur nú skilað niðurstöðum sínum.
Skýrslunni er ætlað að leggja grunn að upplýstri umræðu um framtíðarfyrirkomulag gjaldmiðlamála á Íslandi. Ráðuneytið efnir til ráðstefnu um efni skýrslunnar í Hörpu þann 2. júní næstkomandi.
Í frétt á vef Stjórnarráðsins kemur fram að hópnum hafi verið falið að meta kosti og galla sjálfstæðs gjaldmiðils í samanburði við aðild að stærra gjaldmiðlasvæði, svo sem evrusvæðinu.
„Helstu niðurstöður skýrslunnar eru að kostnaðurinn við íslensku krónuna sé verulegur og líklega að jafnaði meiri en sá ábati sem fylgir sjálfstæðum gjaldmiðli. Höfundar telja að gengi krónunnar sé ekki til þess fallið að stuðla að efnahagslegum stöðugleika, nema í stóráföllum og að gengissveiflur hafi oft fremur magnað en dregið úr áhrifum efnahagsskella. Þá er bent á að upptaka evru gæti haft í för með sér lægri vexti, minni viðskiptakostnað, aukinn stöðugleika og betri aðgang að fjármálamörkuðum.“
Á móti bendir skýrslan á að upptaka evru myndi fela í sér að Ísland gæfi upp sjálfstæða peningastefnu. Þá myndi aukin ábyrgð færast yfir á ríkisfjármál, vinnumarkað og aðra hagstjórn til að tryggja stöðugleika.
Þá kemur fram í skýrslunni að umbætur á vinnumarkaði séu taldar nauðsynlegar óháð fyrirkomulagi gengismála. Slíkar umbætur væru þó forsenda farsællar aðildar að myntbandalagi, að mati skýrsluhöfunda.
Skýrslan er skrifuð af hópi erlendra sérfræðinga undir stjórn Catherine L. Mann, fyrrum aðalhagfræðings OECD, sem situr í peningastefnunefnd seðlabanka Evrópu. Einnig voru í hópnum Hilde Christiane Bjørnland, prófessor við Norska viðskiptaháskólann, Steinar Holden, prófessor við Háskólann í Osló, og Stijn Claessens, fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóri hagfræðisviðs Alþjóðagreiðslubankans, BIS, sem nú starfar við Yale-háskóla.
Fjallað verður um efni skýrslunnar á opinni ráðstefnu í Hörpu þann 2. júní næstkomandi. Catherine L. Mann, sem fer fyrir hópi skýrsluhöfunda, mun gera grein fyrir helstu niðurstöðum og taka þátt í pallborði.
Þá munu Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri flytja ávarp. Einnig verður ávarp frá ECB seðlabanka Evrópu. Að loknum ávörpum fara fram pallborðsumræður.