Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. telur forstjóra Matvælastofnunar hafa látið aktívistum gögn í té, þar sem staðsetningarhnit báta Hvals hafi verið sýnileg, til þess að koma höggi á fyrirtækið og starfsfólk þess.
Hrönn Ólína Jörundsdóttir forstjóri MAST brást við gagnrýni Kristjáns á föstudaginn og sagði MAST skylt að afhenda eftirlitsskýrslur sínar á grundvelli upplýsingalaga. Stofnunin hafi þó brugðist við strax og breytt verklagi. Staðsetning langreyðanna sé því ekki lengur skráð í þeirra eftirliti.
„Þeir hætta þessu“
Rætt var við Kristján í kvöldfréttum Sýnar. Spurður um atvik þar sem sjómaður lék sér að getnaðarlim hvalhræs sagði Kristján það eflaust hafa verið óþarfa. Starfsmenn Hvals hafi þó ekki endilega vitað að fréttamenn Sýnar hafi verið á vettvangi og athæfið líklegast beinst að aðgerðarsinnum sem fylgdust með úr fjarska, ekki að myndavélinni.
„Ætli þeir hafi ekki bara verið að segja þeim fokk off með þessu? Ég reikna með því.“
Spurður hvort hann hafi tekið á hegðuninni svarar Kristján neitandi. „Þeir hætta þessu.“
Ferðamenn geti bara litið í hina áttina
Kristján var einnig spurður um fyrirhugað frumvarp atvinnuvegaráðherra um að banna hvalveiðar. Kristján sagði að ráðherra væri frjálst að gera það. Hann telji í ár þó ekki vera síðustu vertíðina.
„En ég er þá að hugsa um að setja mig í samband við Guiness book of records og spyrja hvort þeir hafi nokkurn tíma heyrt um frumvarp þar sem atvinnuvegaráðherra vill leggja niður atvinnuveg.“
Spurður hvort hann sýni því skilning að hvalveiðar hneyksli ferðamenn og geti jafnvel skaðað orðstír Íslands segist Kristján ekki gera það. Blöskri ferðamönnum hvalveiðarnar geti þeir litið í hina áttina.