Á næstu árum stendur til að byggja á bilinu 1.200-1.400 nýjar íbúðir – bæði á lóðum ríkisins og í húsnæði í ríkiseigu sem verður breytt í íbúðir.
Þetta er meðal aðgerða Reykjavíkurborgar og ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum sem kynntar voru í dag. Þær eru liður í öðrum húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar.
Byggja á íbúðir á eftirfarandi stöðum:
- Borgartúni: 220 íbúðir
- Grensásvegi: 90 íbúðir
- Efri hluta Laugavegar: 100 íbúðir
- Laugarnesvegi: 300 íbúðir
- Seljavegi: 90 íbúðir
- Á landi austan Korpúlfsstaða, á mörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar: 400-600 íbúðir
Fram kemur að íbúðirnar verða annars vegar nýbyggingar og hins vegar umbreytt húsnæði sem áður var nýtt undir stofnanir og aðra starfsemi ríkisins. Hluti íbúðanna er hugsaður fyrir hlutdeildarlán, stúdentaíbúðir, íbúðir á vegum leigufélaga stéttarfélaga og búseturétt.
Verkefnin verða auglýst á næstunni og þá verður hægt að sækja um að byggja þau. Í framhaldinu verða lóðirnar og eignirnar seldar til þeirra sem verða fyrir valinu og verkefnin fara svo áfram í frekara skipulagsferli.
Þá áformar ríkisstjórnin að vinna áfram markvisst að uppbyggingu á ríkislóðum og ríkiseignum í fleiri sveitarfélögum.