Aðgerð Mette-Marit heppnaðist vel

Norska krónprinsessan Mette-Marit hefur gengist undir árangursríka lungnaígræðslu eftir að heilsu hennar hafði hrakað verulega undanfarna mánuði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá norsku konungshöllinni sem birt var í dag.
Krónprinsessan, sem er 52 ára gömul, greindist árið 2018 með sjaldgæfa tegund lungnatrefjunar sem veldur örmyndun í lungum og getur leitt til alvarlegra öndunarerfiðleika. Læknar hennar greindu frá því fyrr í þessum mánuði að hún hefði verið sett á biðlista fyrir lungnaígræðslu eftir að ástand hennar versnaði verulega á síðustu sex mánuðum.
„Við erum afar ánægð með að allt hafi gengið vel hingað til,“ sagði lungnasérfræðingurinn Are Holm í yfirlýsingu sem fylgdi tilkynningu hallarinnar. Fram kom að krónprinsessan muni dvelja á sjúkrahúsi næstu vikurnar samkvæmt hefðbundnum verkferlum fyrir sjúklinga sem nýlega hafa fengið líffæraígræðslu.
Læknar hafa áður sagt að lungnaígræðsla sé síðasta úrræði fyrir sjúklinga með langt gengna lungnatrefjun og sé yfirleitt aðeins framkvæmd þegar talið er að lífslíkur án nýrra lungna séu innan við tvö ár.
Í kjölfar aðgerðarinnar mun eiginmaður hennar, Hákon, draga úr opinberum skyldum sínum til að geta verið meira við hlið eiginkonu sinnar á batatímanum.
Tilkynningin kemur á erfiðum tíma fyrir norsku konungsfjölskylduna. Aðeins tveimur dögum áður dæmdi dómstóll í Osló son krónprinsessunnar úr fyrra sambandi, Marius Borg Høiby, í fjögurra ára fangelsi fyrir tvær nauðganir og fjölda annarra brota. Høiby hefur neitað sök í alvarlegustu ákæruliðunum og lögmenn hans hafa boðað áfrýjun dómsins.