Rúmenar hafa rekið aðalræðismann Rússlands heim og lokað aðalræðisskrifstofu eftir að rússneskur dróni lenti á íbúðarhúsnæði í rúmensku borginni Galati í nótt. Atvikið er það alvarlegasta í landinu síðan stríð braust út í Úkraínu.
Kona og unglingspiltur særðust í nótt þegar rússneskur dróni lenti á þaki íbúðarhúss í Galati, skammt frá landamærunum að Úkraínu. Tugir þurftu að yfirgefa heimili sín.
Nicusor Dan, forseti Rúmeníu, segir atvikið það alvarlegasta í Rúmeníu frá upphafi stríðsins. Rúmenar hafa kallað varnarráðið saman, kallað rússneska sendiherrann á teppið, sent aðalræðismann Rússlands úr landi og lokað aðalræðisskrifstofu Rússa í Rúmeníu.
Almenningur í Rúmeníu kallar eftir harðari viðbrögðum og vill að Atlantshafsbandalagið bregðist við. Þá hafa vaknað spurningar um hvers vegna dróninn var ekki skotinn niður.
Yfirmaður hjá rúmenska hernum segir að smæð drónans og stutt vegalengd frá landamærunum hafi komið í veg fyrir að herinn gæti brugðist við. Dróninn flaug aðeins 10 kílómetra inn í landið áður en hann brotlenti, og rúmenski herinn hefði átt á hættu á að rjúfa lofthelgi Úkraínu til að bregðast við.
Atvikið hefur vakið hörð viðbrögð ráðamanna á Vesturlöndum. Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, hét fullri samstöðu með Rúmenum. Hann sagði að skeytingarlaus framganga Rússa ógnaði öllum. Rutte ræddi við rúmenska forsetann í morgun og hét því að Atlantshafsbandalagið myndi verja hvern þumlung af landsvæði aðildarríkja bandalagsins.
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir ríkið reiðubúið að styðja Rúmeníu með öllum leiðum og hvetur Evrópuríki til að setja aukinn þrýsting á Rússa.