Aðalmeðferð í Reykholtsmálinu svokallaða, þar sem sex eru ákærð, hefst í Héraðsdómi Suðurlands í dag.
Fimm karlar og ein kona, sem öll eru Íslendingar, eru ákærð fyrir sérstaklega hættulega og stórfellda líkamsárás, frelsissviptingu, ólögmæta nauðung og rán í Reykholti fyrir tveimur árum.
Öll neituðu sök við þingfestingu málsins í mars. Talið er að aðalmeðferðin geti tekið allt að tíu daga.
Sakborningarnir, sem eru tengdir fjölskylduböndum, eru sagðir hafa ruðst inn á heimili manns í Reykholti, bundið hendur hans saman með strigalímbandi og veist að honum með grófu ofbeldi. Maðurinn var þá sextugur og er palestínskur en er með maltneskt ríkisfang.
Eiga að hafa stolið rúmlega þrettán milljónum
Málið vakti mikla athygli á sínum tíma og lögreglustjórinn á Suðurlandi lýsti því sjálfur sem fordæmalausu. Nærri tvö ár liðu þar til ákæra var gefin út.
Manninum á að hafa verið haldið föngnum á heimili sínu alls í þrjá sólarhringa og í ákæru héraðssaksóknara er því lýst að einn hafi bundið hendur mannsins saman með strigalímbandi en hinir eiga að hafa sparkað og barið hann í höfuð og líkama.
Annar á að hafa snúið svo harkalega upp á vísifingur á hægri hönd að puttinn brotnaði. Þá hafi mat og drykk verið haldið frá honum og honum ógnað. Manninum tókst að flýja á einum tímapunkti en var hlaupinn uppi og beittur frekara ofbeldi. Alls er talið að um þrettán og hálfri milljón króna hafi verið rænt af manninum.
Rótin að öllu er í ákærunni sögð hafa verið fullyrðingar eins ákærða um að maðurinn skuldaði honum leigu. Eftir að hafa beitt manninn ofbeldi og stolið af honum fé eiga sexmenningarnir að hafa farið með manninn upp á flugvöll og fylgt honum í flugvél sem fór með hann til Parísar og þaðan áfram til Möltu. Þegar maðurinn komst til Möltu tók hann leigubíl að heimili fyrrverandi eiginkonu sinnar þar sem hann missti meðvitund og var í framhaldinu fluttur á sjúkrastofnun.