Aðalmeðferð í hinu hrottalega Reykholtsmáli hefst í dag

Aðalmeðferð í svokölluðu Reykholtsmáli hefst í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Fimm karlar og ein kona eru ákærð fyrir sérstaklega hættulega og stórfellda líkamsárás, frelsissviptingu, ólögmæta nauðung og rán. Öll neituðu sök við þingfestingu málsins í mars en þau tengjast öll fjölskylduböndum.
Samkvæmt ákæru réðst sexmenningarnir inn á heimili þá sextugs palestínsks manns með maltneskt ríkisfang í Reykholti fyrir tveimur árum. Þar á að hafa bundið hendur hans með strigalímbandi og beitt hann grófu ofbeldi.
Manninum var að sögn ákæru haldið föngnum í þrjá sólarhringa, hann barinn og honum ógnað. Þá var vísifingur hans brotinn og mat og drykk haldið frá honum. Alls er talið að um 13,5 milljónum króna hafi verið rænt af honum.
Sexmenningarnir eiga síðan að hafa fylgt manninum á flugvöll og komið honum í flug til Parísar, þaðan sem hann hélt til Möltu. Þar var hann síðar fluttur á sjúkrastofnun.
Gert er ráð fyrir að aðalmeðferðin geti staðið í allt að tíu daga.