Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur segir Dani tilbúna til þess að verja allt landsvæði sem tilheyrir aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins, þar á meðal sitt eigið.
Þetta sagði Frederiksen í samtali við blaðamenn þegar hún var spurð út í það hvort Danir væru reiðubúnir til að verja Grænland hernaðarlega. Spurningin er til komin vegna ummæla Donalds Trumps Bandaríkjaforseta frá því í gær. Á blaðamannafundi með Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta sagði Trump enn á ný að Bandaríkin ættu að ráða yfir Grænlandi.
„Að sjálfsögðu verjum við Konungsríkið Danmörku,“ sagði Frederiksen þegar hún var í kjölfarið spurð hvort Danir væru tilbúnir til að verja Grænland fyrir jafnt fjandmönnum sem gömlum vinum.
Danir stóli á fimmtu grein stofnsáttmálans – rétt eins og Bandaríkjamenn
Spurð út í viðbrögð sín við ummælum Trumps sagði Frederiksen afstöðu Bandaríkjanna „því miður“ vera nokkuð skýra.
„Okkar afstaða er eins skýr og hún hefur alltaf verið. Grænland er að sjálfsögðu ekki til sölu. Við vonum að allir, þar á meðal allir bandamenn okkar, virði sjálfsákvörðunarrrétt Grænlendinga. Við erum fullvalda þjóð og krefjumst þess að allir virði friðhelgi landamæra okkar og fullveldi,“ sagði Frederiksen.
Frederiksen sagði fimmtu grein stofnsáttmálans tryggja varnir Danmerkur rétt eins og allra aðildarríkjanna. Hún gæti ekki tryggt öryggi þjóðar sinnar ef ekki væri fyrir Atlantshafsbandalagið og fimmtu greinina. Það sama ætti við um Bandaríkin.