Parísarlögreglan hefur handtekið á þriðja hundrað manns eftir að óspektir brutust út í kjölfar sigurs Paris Saint Germain á Arsenal í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Næstum hundrað til viðbótar voru handteknir annars staðar í Frakklandi.
Tugir þúsunda lögreglumanna um gervallt landið voru kallaðir út og reiðubúnir að bregðast við því versta í ljósi þeirra óeirða sem urðu eftir sigur PSG á síðasta ári.
Skemmdir voru unnar á minnst sex farartækjum í París, nokkrum verslunum og lögreglumaður meiddist í átökum að sögn lögregluyfirvalda. Sporvagna- og strætisvagnaferðum var aflýst víða í París og nokkrum jarðlestarstöðvum lokað til að minnka líkurnar á ólátum.
Úrslitaleikurinn var spilaður í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands. Staðan var jöfn, 1 : 1, eftir venjulegan leiktíma og framlengingu. Þetta er annað árið í röð sem PSG vinnur titilinn og er þar með annað liðið í sögunni til þess að ná þeim áfanga. Arsenal hefur aldrei unnið Meistaradeild Evrópu í sjötíu ára sögu keppninnar.
Lögregla segir að yfir 20 þúsund hafi safnast saman á Champs-Elysees breiðstrætinu og fjöldi fólks flykktist út á hringbrautina umhverfis höfuðborgina, skaut upp flugeldum og truflaði bílaumferð.
Verslunareigendur byrgðu glugga áður en leikurinn hófst, reynslunni ríkari frá í fyrra þegar hópar ungmenna unnu spjöll á verslunum og öðrum fyrirtækjum í miðborginni. Þá voru hundruð handtekin fyrir óspektir.
Tugir þúsunda söfnuðust saman á Parc des Princes-leikvanginum til að fylgjast með útsendingu frá leiknum. Einhverjir unnu spjöll á bakaríi og veitingastað skammt þar frá. Lögregla stöðvaði 150 manns frá því að ryðjast gegnum öryggishlið við leikvanginn.
Lögregla beitti táragasi þegar mest gekk á að sögn tíðindamanns AFP-fréttaveitunnar á staðnum. Mikið var um að vera í París í kvöld, því auk úrslitaleiksins hélt poppstjarnan Aya Nakamura tónleika á Stade de France og rapparinn Damso skemmti á La Defense-leikvanginum.
Opna franska meistaramótið í tennis er líka í fullum gangi. Leikmönnum PSG verður fagnað með hátíðarskrúðgöngu um Champs-de-Mars fyrir framan Eiffel-turninn og búist er við að 100 þúsund manns mæti þangað. Að því búnu tekur forsetinn Emmanuel Macron á móti leikmönnunum í Elysee-höll.